Júlí, 2005

Eftir 3 vikur … - 31 Júl 2005

… verðum við Palli orðin hjón!

Í gær fórum við til Grove City en það er 1 klst akstur norður af Pittsburgh og þar er risastórt “outlet mall”. Eftir það skruppum við til Erie og lágum á ströndinni við Erie Vatn. Síðan var planið að fara út af borða í Erie en bærin var heldur betur vonbrigði, reyndar var slatti af götum lokaður svo að það getur vel verið að við höfum misst af öllu þessu skemmtilega í bænum. Drifum okkur því til baka til Pittsburgh, pöntuðum pitsu á Aillios pizza og horfðum á sjónvarpið - hvað annað! Þessar pitsur voru svaka góðar og ekkert verið að spara áleggið … ekki heldur ostinn svo ég endaði á að taka megnið af honum af enda finnst mér of mikill ostur ekki góður og fæ yfirleitt illt í maginn af svoleiðis.

Á morgun er ég að fara í lokapróf í “Regression Analysis” svo dagurinn í dag fer í það að læra. Á síðasta fimmtudag fékk ég fullt af nýjum gögnum til að analysera, eðlilega þarf ég helst að gera það áður en haldið er til Íslands. Í næstu viku fáum við svo líklega frumútgáfu af gagnagrunninum og þá þarf maður að byrja að prófa hann og hvort hann geri hlutina eins og maður vill og geti yfir höfuð gert það sem maður vill.

Nú er mín ekki búin að naga neglurnar í þónokkurn tíma, þær verða því ábyggilega í fínu lagi til að fara í handsnyrtingu með mömmu þegar ég kem heim!


3 svör
Mont! - 27 Júl 2005

Bara að monta mig aðeins, sjá hér, en þið getið örugglega bara séð abstractið.


6 svör
Skype - 27 Júl 2005

Verð stundum ansi pirruð þegar ókunnugt fólk hringir í mann á Skype eða biður um að mega sjá mann on-line, af hverju er ég alltaf að lenda í þessu? Mér finnst nú frekar dónalegt að fólki geti dottið í hug að biðja um að sjá mann on-line þegar maður þekkir það ekki neitt, sér í lagi þegar fólk er með svo asnalegt notendanafn að maður veit ekki einu sinni hvað manneskjan heitir. Þeir hinir sömu ættu að vita það að í Ameríku er örugglega hægt að kæra fólk fyrir svona lagað. Lenti nú oftar í þessu fyrst eftir að ég byrjaði með Skype og notendur voru færri en 100 þús en ekki 3 milljónir eins og núna. Hef nú lokað á að minnsta kosti þrjár manneskjur um að mega hafa samband við mig og sjá mig on-line.

Síðustu dagar hafa verið ansi heitir hér í Pittsburgh og best er að halda sig innan dyra í loftkælingu. Við Palli eru nú að spá í að prófa vatnsrennibrautagarð hér í grenndinni, þá getur maður amk verið aðeins úti og kælt sig í lauginni ef maður er gjörsamlega að farast úr hita.

Annars í skemmtilegri hluti, á morgun eru tvær vikur þar til við leggjum í hann til Íslandsins góða.


Eitt svar
17 dagar! - 25 Júl 2005

Vildi bara deila því með ykkur, það eru 17 dagar þar til við Palli leggjum í hann til Íslands.


Eitt svar
Afslöppun! - 24 Júl 2005

Í gær var afar ljúfur dagur, það var enginn raki en samt 90F. Við skelltum okkur því með sætindi frá Panera í Schenley Park og sóluðum okkur. Um kvöldið bökuðum við mest gourmet pitsu, með skinku, lauk, papriku, sveppum, ólífum og þisthilhjörtum. Ég kláraði sætismiðana fyrir brúðkaupsveisluna enda bara 4 vikur í brúðkaup og í dag bara 4. vikur þar til hveitibrauðsdagarnir hefjast :-) Íha og Jibbí Jeij!


Eitt svar
Pappír - 22 Júl 2005

Þá fer vonandi loksins að líða að því að pappírinn minn verði birtur. Fengum pappírinn úr TeX-un fyrir tveim dögum og höfðum þá 48 klst til að svara öllum breytingum sem gerðar voru en yfirleitt þarf að gera einhverjar breytingar til að fylgja reglum tímaritsins um uppsetningu. Ég var rétt í þessu að senda svörin mín og beiðni um nokkrar fleiri breytingar inn. Það þarf líka að senda inn svokallað Page Charge and Reprint Order Form og vá hvað það er dýrt að birta pappír (eitthvað sem ég hafði ekki hugmynd um), $50 fyrir hverja blaðsíðu og $450 í viðbót fyrir fyrstu síðu í lit og $200 fyrir næstu síður í lit. Það er reyndar ábyggilega þess virði, þetta er nefnilega fínt tímarit (American Journal of Human Genetics).


Eitt svar
Teningaspilið - 21 Júl 2005

Ég held ég sé að drepa krakkana sem eru í tíma hjá mér. Ég setti fyrir próf í dag og það gekk ekkert alltof vel þrátt fyrir að hafa verið alltof létt. Þegar ég var í MR þá át maður svona lagað í morgunmat og bað um meira. Svo byrja runur og raðir á morgun, sem er mjög skemmtilegt efni ef maður fattar hvað er í gangi.

Titillinn á færslunni vísar hins vegar til spils sem ég átti og á enn. Það samanstóð af smá kassa úr tré og tölustöfunum 1 til 12 sem hægt var að snúa við. Tveimur sex hliða teningum var varpað og tölum snúið við sem mynduðu summuna af teningunum. T.d. ef 7 kom upp mátti snúa við 7, 6 og 1, 5 og 2, u.s.w. Markmiðið var að snúa öllum tölunum við, ef ekki var hægt að snúa við tölum þá endaði leikurinn. Ég held að ég hafi spilað þetta svona þúsund sinnum, ef ekki oftar.

Stóra spurningin er hverjar eru líkurnar á því að vinna? Það fer auðvitað eftir strategíunni sem er beitt. Í aðalatriðum er best að reyna að snúa við sem hæstum tölustöfum, fyrst einum, síða prufa summu af tveimur &c. Ég, David og Alex vorum að pæla í þessu í hádegismatnum, þegar við ákváðum að skrifa bara forrit sem spilar leikinn. Hálftíma síðar var forritið komið sem spilaði milljón leiki á fimm sekúndum og voilá: vinningslíkurnar eru ca. 1/330.

Það er líka mjög hressandi að vita til þess að í ca. 5% tilfella er hægt að klára leikinn í einu teningakasti, t.d. að eiga bara 12 eftir. Ef summa tölustafanna sem eftir eru er lögð saman fæst að hún verður að meðaltali ca. 35.

Við erum að vinna í því að stofna spilavíti þar sem hægt verður að spila teningaspilið og tapa feitt.


Engin svör
Kalforníublíða! - 20 Júl 2005

Enn og aftur um veðrið. Það er rjómablíða í Pittsburgh, rakinn er í algjöru lágmarki miðað við þennan tíma árs! Svona gott er veðrið víst alltaf í Kaliforníu.

Í rakaleysi gærkvöldsins byrjuðum við að búa til sætismiðana fyrir veisluna, það var klippt, skorið, prentað og skreytt. Við erum reyndar ekki búin með allt en erum komin vel áleiðis.

Á morgun eru þrjár vikur þar til við leggjum í hann til Íslands. Jibbí Jeij!

Er þetta ekki bara met í nýjum færslum á síðunni? Bæ í bili!


Eitt svar
Veðrið - 19 Júl 2005

Það er fátt í fréttum nema að veðurfræðingarnir lofuðu að rakinn myndi minnka í kvöld, vona að það gangi eftir. Rakinn var reyndar ekki svo rosalega slæmur í gærkvöldi svo að við nýttum tækifærið og elduðum íslenskan lax. Þar sem maður hefur nú ekkert svakalega mikla orku í þessum hita (hún fer bara öll í að svitna, þvílíkt ógó!) keyptum við bara meðlæti í Whole Foods, alveg svakalega gott kartöflusalat … næstum jafngott og mitt … hehe!

Annars erum við ferlegir lúðir og erum búin að tuða mikið yfir því að Whole Foods sé ekki með svona áleggs Deli - svona þar sem maður getur látið skera niður alls konar gott kjöt í sneiðar í hvaða þykkt sem er, þunnskorin kalkkúnabringa er þvílíkt góð á samlokur - en viti menn auðvitað var þetta hægt. Skil ekkert í því að við höfum ekki tekið eftir þessu fyrr, förum nú bara í búðina a.m.k einu sinni í viku. Jæja, hvað um það, þar eð við tókum loks eftir þessu skelltum við okkur auðvitað á dýrindis kalkúnabringu.

Á síðasta laugardag varð nú ekkert úr bíóferðinni. Fórum á The Waterfront en fleiri virtust vera með sömu hugmynd og við, allt fullt á öllum veitingastöðum og meira en tveggja og hálfstíma bið, það var líka uppselt á allar myndir sem okkur langaði á í bíóinu. Við brunuðum því upp í Squirell Hill, fengum okkur að borða á Alladins og fórum svo í Barnes & Noble, kíktum á Harry Potter staflana og ég keypti mér blað um brúðkaupsskreytingar.


Engin svör
Rakinn er kominn - 16 Júl 2005

Nú er ólíft hér í Pittsburgh fyrir raka og hita, sem betur fer hefur verið nær sólarlaust í dag og í gær en þrumuveðrið var hins vegar brjálað. Við skelltum okkur í mollið áðan, það var nú kominn tími til að kæla sig annars staðar en í skólanum! Ég hugsa að við förum út að borða á eftir, það er ekki sjens að við kveikjum á ofninum núna, svo er nú líka gott að fara í loftkælt rými til að kæla sig fyrir svefninn (kannski er bara best að skella sér í bíó líka).


2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527