- Gáta dauðans - 01 Jún 2005
-
Ómar úr Quarashi leikur rússnenskan töffara í magnaðri Smirnoff Ice auglýsingu. Auglýsingin er víst framleidd í Bretlandi en margt í henni er íslenskt. Þar með talið fyrstu orðin: “Já, hér ríkir kyrrð”.
Þá er komið að gátu dauðans: Hver mælti svo og hvar?
Verðlaun fyrir rétt svar eru ekki af verri endanum: heiðurstitillinn Wisserbesser 2005.
-
Palli
11 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Það má finna lengri útgáfu af fyrstu auglýsingunni á http://www.sagafilm.is/?i=15&o=544 auk þess sem það er innanlandsdánlód.
Sagði Palli — 01 Jún 2005 @ 10:49
Ég ætla að giska á að þetta sé Raggi Bjarna, bílasölumaður með meiru, sem að mælir þessi orð.
Sagði Bjarki — 02 Jún 2005 @ 5:03
Nei ekki alveg. Þetta er vissulega líkt Ragga Bjarna, en hann átti ekki þessa línu.
Sagði Palli — 02 Jún 2005 @ 2:01
Er þetta þá úr “Útlaganum”, Helgi Skúlason þá?
Sagði Bjarki — 02 Jún 2005 @ 3:44
Nei, Helgi Skúla var með miklu rámari rödd en þetta.
Sagði Palli — 02 Jún 2005 @ 4:28
Páll Óskar - Minn hinsti dans?
Sagði Sigrún — 03 Jún 2005 @ 11:04
Nei, ekki Páll Óskar og heldur ekki Rut Reginalds
Sagði Palli — 03 Jún 2005 @ 1:21
Ég ætla að giska á eilífðar- popparann…töffarann…hestamanninn og SSSól forspýruna, Helga Björnsson
Sagði Gunnar bróðir — 03 Jún 2005 @ 8:02
Ég ætlaði nú að giska á eilífðar- töffarann…hestamanninn og forspýruna úr SSSól Helga Björns. En ég held að ég giski frekar á sögumanninn úr Pétri og Úlfinum a.k.a. Bessi Bjarnason.
Sagði Gunnarinn — 06 Jún 2005 @ 6:58
Davíð Þorsteins?
(glott)
Sagði Harpa — 06 Jún 2005 @ 9:34
Gunnarinn hefur rétt fyrir sér og er hér með krýndur Wisserbesser 2005. Trixið var auðvitað að vita hversu oft ég hlustaði á Pétur og Úlfinn þegar ég var lítill.
Harpa er hins vegar að fatta brandarann sem að lærðir menn hafa hafa skrifað langar ritgerðir um.
Sagði Palli — 06 Jún 2005 @ 2:57