- Virginia og Annapolis - 15 Jún 2005
-
Myndir frá ferðalaginu um helgina Virginia-Annapolis: Shenandoah, VA og Annapolis, MD (21 mynd)
-
3 svör
Júní, 2005
- Spennufall - 08 Jún 2005
-
Er að fara í miðssumarpróf á eftir í leiðinlegasta kúrsi í heimi, efnið er nú ekki leiðinlegt bara kennslan! Var í hálfgerðu spennufalli í gær og gekk illa að læra, pappírinn sem ég er búin að vera að vinna í eins á brjálæðingur síðustu vikur var sendur út, við fengum svona hálfgildings “fast track” á pappírinn sem þýðir að yfirlesarar fá bara viku til að koma með athugasemdir. Það merkilega er hins vegar að ég er fyrsti höfundur (svona Jakobsdottir et al), er frekar montin með mig því að það eru merkilegar niðurstöður í þessum pappír.
Ég er eiginlega frekar fegin að við fengum ekki alvöru “fast track” því að það myndi þýða að við fengjum pappírinn til baka á föstudaginn og þar af leiðandi ekkert helgarfrí 6. helgina í röð!
Jæja, óskið mér lukku í prófinu!
-
8 svör
- Gáta dauðans - 01 Jún 2005
-
Ómar úr Quarashi leikur rússnenskan töffara í magnaðri Smirnoff Ice auglýsingu. Auglýsingin er víst framleidd í Bretlandi en margt í henni er íslenskt. Þar með talið fyrstu orðin: “Já, hér ríkir kyrrð”.
Þá er komið að gátu dauðans: Hver mælti svo og hvar?
Verðlaun fyrir rétt svar eru ekki af verri endanum: heiðurstitillinn Wisserbesser 2005.
-
11 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
