- Hvenær er aftur prófið? - 07 Maí 2005
-
Ég hef lengi haldið því fram að ég hefði gott minni. Þó hafa reyndar innkaupalistar og aðrir veraldlegir hlutir aldrei verið mín sterkasta hlið. Fyrir rúmri viku hafði ég bitið það í mig að á föstudaginn síðasta ætti ég að a) fara í próf í machine learning og b) sitja yfir prófi í kúrsinum sem ég er dæmatímakennari fyrir. Báðir þessir atburðir voru skráðir í minni undir fyrirsögninni “það sem þarf að gera föstudaginn níunda maí”. Síðan áttaði ég mig á vitleysunni í mér þegar ég fattaði að prófið sem ég þurfti að sitja yfir væri mánudaginn níunda maí og að níundi maí væri virkilega mánudagur. Ég lærði því eins og berserkur á fimmtudagskveldi til að massa prófið daginn eftir.
Þegar klukkan er rétt óorðin eitt á föstudagi kem ég í stofuna þar sem prófið á að vera haldið og hún er galtóm. Ég fer auðvitað í panik, því að klukkuna vantar þá eina mínútu í eitt. Til að vera handviss þá fer ég á netið (þægilegt að vera með þráðlaust net í fartölvunni) á staðnum og fletti upp á próftöflunni og jú þetta er rétta stofan og hér á að vera próf í machine learning mánudaginn níunda maí klukkan 13:00. Lesum setninguna aftur: “… mánudaginn …”. Mitt minni er ekkert alltof gott.
Annars var ég að uppfæra Wordpress kerfið úr 1.2 í 1.5. Sé engar massabreytingar á öllu saman en það er mun þægilegra að setja upp síðurnar með nýja kerfinu. Síðan sjálf ætti að líta út alveg eins og áður, fyrir utan smávægilegar breytingar. Látið endilega vita ef eitthvað er ekki að virka eða birtist með engilsaxnenskum texta.
-
Palli
9 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Gangi þér vel mánudaginn 9 maí Palli minn. Þorgerður.
Sagði Þorgerður. — 08 Maí 2005 @ 6:15
Ég var í prófi á þriðjudaginn seinasta og það var einn strákur sem hélt að prófið væri á miðvikudeginum og fattaði hið rétta kvöldið fyrir próf…þannig að honum gekk ekki mjög vel, þetta er greinilega alltaf að gerast :)
Sagði Gréta — 08 Maí 2005 @ 6:42
hefði verið verra á uppgötva á mánudaginn að prófið var á föstudag. En svona meinlokur eru kunnuglegar :-)Gangi þér vel í prófinu þegar að því kemur.
kveðja mamma
Sagði mamma og Jón — 08 Maí 2005 @ 11:20
þá er seinasta prófið mitt á morgun kl 9, og við vorum í prófi í dag kl 9, þannig að það er spurning hvernig gangi í efnagreiningu á morgun, ekki hissa þó það verði sumarpróf, en vonum ekki :)
Sagði Gréta — 12 Maí 2005 @ 1:25
hvaða vitleysa! ykkur á örugglega eftir að ganga nógu vel, straumar frá mér á meðan ég sef því að þá ert þú í prófinu :-)
Sagði Johanna — 12 Maí 2005 @ 1:42
jæja þa´er prófið búið gekk bara svona skítsæmó, næ örugglega. en prófið var framlengt um 20 mín því það vantaði mikilvægt jönublað um klofninsfasta sýra og svo var villa í einuu dæmi. en gott að vera búin, smá frí og vika í Tæland :
Sagði Gréta — 13 Maí 2005 @ 7:58
frábært, til lukku með að vera búin!
hvers lags próf er það sem vantar jöfnublað og þarf að framlengja?
Sagði Johanna — 13 Maí 2005 @ 8:44
ef fólk á lífi? það heyris ekkert frá ykkur.hvað kostar ipodmini hjá ykkur, ef hann er ódýrari í Tælandi þá kaupi ég mér kannski þannig, en við erum að fara á laugardaginn og ég er búin að vera á fullu að kaupa flugsokka, þunnarbuxur bikini o.fl. o.fl. annars hitti ég Kristínu og hún er byrjuð aftur í marc o´polo (allavega í sumar). Litla krúttið hennar er orðin 1 árs. Það er alveg bongoblíða hér heima :)
Sagði Gréta — 18 Maí 2005 @ 3:13
jú Gréta mín, við erum á lífi, bara löt að uppfæra og of mikið að gera í vinnunni!
ipod mini $199 4Gb og $249 6Gb, annars mæli ég frekar með ipod shuffle og armbandi!
Sagði Johanna — 18 Maí 2005 @ 3:35