Maí, 2005

Picasa + Wordpress + smá php fikt - 22 Maí 2005

Þá er ég loksins búinn að koma mynda dótinu hérna í lag. Ég held utan um myndirnar í Picasa sem að sér um að exporta þeim og búa til litlar myndir. Síðan er því skúbbað á serverinn og plugin fyrir wordpress sér um að birta myndirnar.

Upphaflega ætlaði ég að nota þetta plugin til að sjá um það en það var ekki nógu gott. Þannig að ég tók mig auðvitað til og breytti kóðanum til hins betra svo að það gæti gert nákvæmlega það sem ég vildi. Útkoman varð náttlega plugin fyrir Wordpress sem er miklu betra en það upphaflega.

Picasa 2 er ágætisforrit en eitt það versta við það eru auðkenni á myndum. Á spjallsíðunum er mikið kvartað undan þessu. Það er hægt að skrifa texta við mynd sem fylgir henni, en textaglugginn virkar ekki með músinni, svipað eins og í DOS í gamla daga. Auk þess sem hún neitar að skilja ó-enska stafi sem er náttúrulega böggur dauðans. Ég fletti upp á því hvernig þetta er gert, einfaldlega iptc svið á jpeg myndinni sem er útfyllt og ekkert mál að hafa alls konar stafi þar. Grr… þeir segjast ætla að laga það en ég nennti ekki að bíða eftir því svo að ég bætti við pluginnið svona admin flipa í wordpress. Þannig get ég breytt texta við myndir í xml skjalinu sem fylgir á einfaldan hátt.

Þannig að ef einhver er að nota Wordpress og langar í þetta plugin, þá er bara hægt að senda mér línu.


2 svör
Myndir úr gönguferð - 19 Maí 2005

Jæja, nú eru loksins komnar myndir úr gönguferðinni, njótið. McConnells Mill: Skógarferð í McConnells Mill (10 myndir)


2 svör
Gönguferð - 18 Maí 2005

Við Palli fórum í McConnell´s Mill á síðasta sunnudag, þetta er einn af mörgum görðum eða frekar skógum með gönguleiðum hér í Pennsylavaniu og um næstu helgi er planið að fara til vestur Virgniu í göguferð.

Brúðarkjóllinn minn er kominn og á föstudaginn fer ég í mátun … svona til að undirbúa mig ætla ég í vax á morgun.

Eins og svo oft áður er mjög mikið að gera í skólanum en ég er komin vel áleiðis með pappírinn, er reyndar lítið búin að vinna í honum síðustu daga þar eð við fengum beiðni frá Duke um að endurtaka hluta af þeirra analysu. Spennandi fréttir eru að við erum búin að finna tvö mjög líkleg gen svo er bara að sjá hvort aðrir endurtaki það eða verði jafnvel á undan að birta!


3 svör
Hvenær er aftur prófið? - 07 Maí 2005

Ég hef lengi haldið því fram að ég hefði gott minni. Þó hafa reyndar innkaupalistar og aðrir veraldlegir hlutir aldrei verið mín sterkasta hlið. Fyrir rúmri viku hafði ég bitið það í mig að á föstudaginn síðasta ætti ég að a) fara í próf í machine learning og b) sitja yfir prófi í kúrsinum sem ég er dæmatímakennari fyrir. Báðir þessir atburðir voru skráðir í minni undir fyrirsögninni “það sem þarf að gera föstudaginn níunda maí”. Síðan áttaði ég mig á vitleysunni í mér þegar ég fattaði að prófið sem ég þurfti að sitja yfir væri mánudaginn níunda maí og að níundi maí væri virkilega mánudagur. Ég lærði því eins og berserkur á fimmtudagskveldi til að massa prófið daginn eftir.

Þegar klukkan er rétt óorðin eitt á föstudagi kem ég í stofuna þar sem prófið á að vera haldið og hún er galtóm. Ég fer auðvitað í panik, því að klukkuna vantar þá eina mínútu í eitt. Til að vera handviss þá fer ég á netið (þægilegt að vera með þráðlaust net í fartölvunni) á staðnum og fletti upp á próftöflunni og jú þetta er rétta stofan og hér á að vera próf í machine learning mánudaginn níunda maí klukkan 13:00. Lesum setninguna aftur: “… mánudaginn …”. Mitt minni er ekkert alltof gott.

Annars var ég að uppfæra Wordpress kerfið úr 1.2 í 1.5. Sé engar massabreytingar á öllu saman en það er mun þægilegra að setja upp síðurnar með nýja kerfinu. Síðan sjálf ætti að líta út alveg eins og áður, fyrir utan smávægilegar breytingar. Látið endilega vita ef eitthvað er ekki að virka eða birtist með engilsaxnenskum texta.


9 svör
Vika dauðans - 03 Maí 2005

Jæja þá er vika dauðans búin og öll helstu líffæri starfa ennþá. Veggspjaldið mitt fyrir machine learning verkefnið mitt var ekki í lit eins og mörg önnur og mun seint teljast til meistaraverka í grafískri hönnun. Ég held hins vegar að mest allt hafi komist til skila eða allaveganna þóttist fólk skilja það sem ég sagði. Skýrslunni var síðan skúbbað saman á sunnudagskveldi og próf í biðraðafræði daginn eftir. Það próf var reyndar mjög hressandi og boðið upp á kökur og djús í miðju prófi, hrein snilld.

Fram undan eru síðan rannsóknir fram á mitt sumar og þá tekur kennslan við. Ég á reyndar eitt próf eftir en nenni ekki að hafa áhyggjur af því. Þegar öllu slíku er lokið þurfum við að gera eitthvað verulega skemmtilegt eftir nokkrar vikur af próf/lokaverkefna mygli.


Eitt svar

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527