- Halló - 29 Mar 2005
-
Bara að láta vita af okkur, hér er of allt of mikið að gera en samt ekkert að frétta! Ég hlakka mikið til þegar þetta misseri verður búið, reyndar eru lokaprófin mín öll á sama degi nema eitt svo að vikan fyrir 27. apríl verður eitthvað skrautleg.
Í sumar fer ég svo í einn kúrs um regression analysis og mun svo líklega sitja einn kúrs um R. Regression kúrsinn er skylda og deildin borgar bara þrjár einingar fyrir nemendur sína á sumrin svo að ég verð að láta mér nægja að sitja bara R kúrsinn.
Vorið er líka komið, yndislegt!
-
5 svör
Mars, 2005
- Komin aftur til Pittsburgh - 16 Mar 2005
-
Jæja þá erum við krúttídúllurnar komnar aftur heim til Pittsburgh og orðið eitthvað langt síðan síðast var fært hér inn. Ferðin heim var tær snilld, við hittum flesta - því miður ekki alla :( Við fórum meðal annars með pabba vestur að Hóli og litum á nýja framtíðarslot fjölskyldunnar. Mikið voðalega var gott að anda að sér alvöru hreinu íslensku lofti.
Síðan var lögð lokahönd á undirbúning fyrir brúðkaupið, það verður gaman að fara í gengum tjekk listann! Annars erum við orðin svo hrikalega spennt og finnst 5 mánuðir helst til löng bið.
Núna er brjálað að gera hjá mér í skólanum, eins og endra nær. GSR verkefnið mitt er á fullri ferð og margir pappírar í sigtinu! Var í miðsvetrarprófi í morgun og gekk vel, að ég held.
-
Engin svör
- Jamm! - 01 Mar 2005
-
Það er ekki að því að spyrja!
Your Brain is 73.33% Female, 26.67% Male
Your brain leans female
You think with your heart, not your head
Sweet and considerate, you are a giver
But you’re tough enough not to let anyone take advantage of you!Og við leggjum í hann ekki á morgun heldur hinn. Jibbíkóla :-)
-
4 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
