- Vika í heimferð - 24 Feb 2005
-
Jæja þá er vika í heimferð og frábær vika með mömmu og Bryndísi liðin. Við stelpurnar drifum okkur strax á fimmtudeginum í brúðarkjólaleiðangur og fundum kjól á fyrsta staðnum. Kjólinn Watters&Watters kjóll og er úr draumaefninu mínu, hæfilega rómantískur og mjög flottur, honum verður ekkert lýst frekar. Ég lét ekki einu sinni taka mynd af mér í kjólnum, ég veit ég gæti aldrei haldið svoleiðis myndi leyndri frá Palla lengur en nokkarar mínútur, hvað þá 6 mánuði!
Mamma fann líka æðislega flott dress úr brúðarmeyjalínunni frá Watters&Watters. Pabbi keypti sér brúðarjakkaföt þegar hann var í Kanada um daginn. Næst verðum við að finna flott föt á Palla - við ætlum nú samt ekki að pæla í því fyrr en við komum heim.
Á föstudeginum fórum við svo á The Waterfront og kíktum meðal annars í búð sem selur alls konar föndur dót og skraut. Við höfðum það alveg hrikalega notalegt og fórum m.a. tvisvar sinnum á Alladins, uppáhalds stað okkar Palla - mamma og Bryndís féllu líka fyrir honum.
Á laugardeginum röltum við um Shadyside og Oakland og sýndum mömmu og Brydísi skólana okkar. Við fórum upp á topp í Cathedral of Learnig og kíktum í “international classroom”.
Við fundum líka boðskort og letur í Hallmark. Höfðum reyndar svolitlar áhyggjur af því að ð, þ og æ gætu orðið erfið en viti menn við fundum leturgerðina á netinu og öll ASCII táknin eru bara til! Þegar við komum heim þurfum við bara að semja fallegan texta með foreldrunum.
Ég fer síðna í klippingu og strípur hjá Tony&Guy þegar ég kem heim og ætla að tala við þær um brúðargreiðslu. Síðan ætlum við nú líka að kíkja á salinn o. s. frv. Víi!
-
7 svör
Febrúar, 2005
- Magnað Apparat - 21 Feb 2005
-
Haldiði að síminn minn hafi ekki bara verið að deyja, loftnetið í einhverju hassi og aldrei nein tenging. Ég nýtti því tækifærið fyrst ég var í mollinu um daginn að skoða síma á básunum þar. Ef maður stofnar nýjan símreikning þá fær maður síma ókeypis eða niðurgreiddan svo að ég ákvað að athuga. Þá kom í ljós að af því að ég var búinn að vera svo lengi í viðskiptum við þá að ég fékk sama díl og nýjir viðskiptavinir, svo að ég fékk nýjan síma, Motorola V180, fyrir ekki neitt.
Þetta er auðvitað fínasti sími og við nánari eftirgrenslan kom í ljós að hann spilar mp3 eins og ekkert sé og er með USB tengi. Eftir smá stúss og leit á Google er ég búinn að klippa hljóðbút úr laginu Romantica með Apparat Organ Quartet og setja sem símhringinguna mína. Baldur er mér áreiðanlega sammála að flottari símhringingu er vart hægt að finna.
-
3 svör
- Á morgun … - 15 Feb 2005
-
… koma mamma og Bryndís. Jibbí.
Á fimmtudaginn förum við svo í fyrsta brúðarkjólaleiðangurinn á stað sem selur Watters & Watters kjóla. Ef ekkert passar þar höldum við svo áfram á föstudag og laugardag. Ég þarf að dífa mig í vax á morgun eða fimmtudagsmorgun fyrir kjólaleiðangrana!
Annars bara allt gott, eins og endranær er brjálað að gera en mjög gaman.
-
4 svör
- Ipod Shuffle - 14 Feb 2005
-
Við Jóhanna ákváðum að taka okkur gott frí á laugardaginn, rölta á Walnut St. sem er skemmtileg göngugata nálægt okkur, fá sér kaffi og kíkja á dótið í Apple búðinni. Við keyptum okkur dót til að hreinsa skjáinn á fartölvunum okkar og við afgreiðsluborðið var fullt af Ipod Shuffle. Við ákváðum auðvitað að skella okkur á einn, enda merkilegt apparat. Kosturinn við Applebúðina er að það er hægt að fá stúdentaafslátt, en það var reyndar bara af stærri gerðinni, 1Gb, og hún var uppseld.
Þar sem að þeir áttu að fá hann eftir tvær vikur eða eitthvað þá ákváðum við að bíða með það. Stuttu seinna fengum við hringingu þar sem við vorum beðin um að kaupa tvo Ipod Mini, þannig að við skelltum okkur aftur út í Apple búðina. Fyrst við vorum kominn aftur á staðinn, af hverju ekki að skella sér bara á eitt stykki Shuffle? En þá voru þeir auðvitað búnir, ég taldi eitthvað um 8 stykki og tæpum tveimur tímum síðar var það allt búið. Kannski tvær vikur í næstu sendingu og hún selst upp á einum degi eða svo, djö!
Ég gafst auðvitað ekki upp ráðalaus, ráðfærði mig við netið og fann að Best Buy átti nokkur stykki. Við þurftum hvort eð er að fara í búð í grenndinni á sunnudeginum svo að nú er ég kominn með eitt stykki Ipod Shuffle.
Stóra spurningin er náttlega hvernig er græjan. Vægast sagt æðisleg, passar fínt í vasa, gott hljóð og heldur slatta af dóti.
-
6 svör
- Ekki-fréttir frá Mogganum - 08 Feb 2005
-
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld - þvílíkt lummó setning sem eldist nokkuð vel, a.m.k. betur heldur en glansbúningarnir. En tíminn okkar hefur liðið nokkuð hratt, janúar allt í einu búinn og fjórðungur af febrúar liðinn, Í næstu viku koma Þorgerður og Bryndís í heimsókn og rétt rúmri viku eftir að þær fara heim leggjum við af stað. Veðrið er sem betur fer að skána og verstu frostin búin, um helgina var reyndar 12° hiti og vonandi bara eitt kuldakast eftir.
Annars er það helst í ekki-fréttum að þriðjungur íslenskra golfara hefur ekki notað golfhermi, en hvað mér líður vel að vita það. Eins og flestir sem mig þekkja vita (hérumbil allir sem eru að lesa þetta) er mér illa við blaðamenn. Reyndar ekki alla blaðamenn, bara þá sem halda að þeir séu svo rosalega góðir að þeir geti fjallað um vísindi (þeir geta það ekki). Nú kann mörgum að þykja yrðingin “Allir blaðamenn eru ófærir um að fjalla um vísindi (af einhverju viti)” sé frekar sterk, en hið merkilega er að hún stenst. Tökum sem dæmi. Eitt sinn var viðtal við mig, Sverri og Tryggva um verkefnið okkar síðan í gamla daga sem hluta af stærri grein um gugvísi. Við báðum um að fá að lesa greinina sem varðaði okkur til að geta farið yfir staðreyndir og ekki var vanþörf á. Blaðamaðurinn var búinn að snara enska titlinum “… Galaxy cluster” yfir í “Stjörnuþokan …”, við bentum honum á að maður mætti ekki bara taka sér skáldaleyfi þegar kæmi að svonalöguðu og lagfærðum þetta og ýmislegt annað í greininni (t.d. innihald og útskýringar). Hann var þakklátur, við ánægðir, greinin rétt og allir vinna. Nema hvað að það var vísað í verkefnið í greininni um Hugvísi, þar hét verkefnið okkar allt í einu “Stjörnuþokan …”, grrr!
Mogginn mátti þó eiga það að hann setti smá vinnu í dæmið. Hið sama er ekki hægt að segja um Fréttablaðið. Viku eftir að Hugvísisgreinin birtist fæ ég hringingu frá einhverjum á Fréttablaðinu sem vill spyrja mig spurninga um verkefnið og reynslu mína af því. Þetta voru auðvitað klisjuspurningar sem ég svaraði með einhverju klisjusvari (ef mig minnir rétt þá var ég eitthvað nývaknaður eftir að hafa lagt mig) og hafði ekki rænu á að spurja neitt meira. Viku síðar sé ég greinina í Fréttablaðinu þar sem ég er nefndur á nafn og verkefnið heitir allt í einu “Stjörnuþokan …”, en í símtalinu hafði blaðamaðurinn ekki minnst einu orði á heiti verkefnisins, hvað þá innihald þess eða niðurstöður. Þá veit maður að Fréttablaðið vinnur heimildavinnuna sína með því að lesa Moggann.
-
6 svör
- Allt á fullu - 05 Feb 2005
-
Nú er allt brjálað hjá mér í skólanum. Verkefnið mitt er á fullri ferð, ég er byrjuð á nýjustu gögnunum og verður spennadi að sjá hvernig það kemur út. Ég er reyndar svolítið stressuð yfir þessu því að þetta eru 1000 markerar og veit ekki hvernig öll forrit munu höndla það. Spennan mun svo magnast þegar eldri markerum verður bætt við analysuna.
Var á fundi með öllum sem vinna í þessu verkefni í gær, gekk bara vel og aðeins meiri vinna framundan. Núna er ég oftast í skólanum frá 8.30 til a.m.k sjö/átta á kvöldin. Það er reyndar bara mjög þægilegt, yfirleitt mjög rólegt í skrifstofunni minni eftir fimm.
Kúrsarnir sem ég er í þetta misseri eru:
- Intro to Statistical Methods II
- Intro to Statistical Theory II
- Survival Analysis
- Statistical methods and data mining in microarray analysis
- Human Population Genetics
- Biostatistics Seminar
Alls eru þetta 14 einingar og ég á að taka 72 einingar í kúrsum fyrir PhD námið (seminar einingar eru ekki taldar þar inn í). Finnst þetta ansi mikil kúrsavinna sérstaklega þar sem maður er nú að læra mest á GSR vinnunni.
Svo er ég náttúrulega áfram í “Statistical Genetics Journal Club and Reading Group”. Ég hef nú reyndar ekki þurft að stjórna umræðunni hingað til, sem betur fer - þá fyrst fer maður nú að verða stressaður, halda fyrirlestur á ensku fyrir fólk sem er allt svakalega klárt og með margra ára reynslu á sínu sviði …
-
Eitt svar
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
