- Lyfjaóðir Kanar - 28 Jan 2005
-
Já, Kanar eru pillu óðir. Eina sem þeir aulýsa í sjónvarpi eru lyfseðilskyld lyf og bílar. Ég fór til að mynda í læknisskoðun i gær út af bílprófinu - það þarf víst að láta lækni skrifa upp á að maður sé með labbir og hendur - sama heimskulega systemið og heima, munurinn er bara sá að í stað þess að krossa sjálfur i reit sem segir að maður misnoti ekki eiturlyf þá gerir læknirinn það fyrir mann. Jæja þar eð ég var að koma í fyrsta skipti á heilsugæslu stúdenta þá varð ég að fylla út alskonar pappíra um sjúkarsögu mína og var meðal annars spurð að því hvort að ég hafi nýlega fengið stífkrampasprautu, maður á víst að fá hana á 10 ára fresti til að viðhalda ónæminu. Ég vissi fyrst ekkert hvað hjúkkan var að tala um og hún byrjaði að útskýra, ef þú stígur á ryðgaðan nagla eða hundur bítur þig o. s. frv. þá verður þú að vera sprautuð.
Ég hugasði að það væri náttúrulega bara best að taka þess sprautu - veit ekki í hverju ég hefði lent hefði ég bara sagt nei takk. Mér er sem sagt óhætt að stíga á ryðgaðan nagla næstu 10 ár! Eitthvað sem maður vill helst geta gert, er það ekki?
-
Jóhanna
3 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Fyndið. Ég hélt að það væri nóg að fá sprautuna eftirá ef eitthvað gerðist.
Sagði Sigrún — 29 Jan 2005 @ 6:32
er reyndar búin að komast að því af hverju þeir eru svona stressaðir yfir þessu, bakterían lifir víst í moldinni hér (ég held að það sé málið á flestum stöðum utan Íslands) svo að ef maður er einhvers staðar í lengst í burtu þá dugar víst ekki að fá hana eftir á eins og heima. fyrir utan það að eftir að manneskja er sýkt þá smitast bakterían mjög auðveldlega milli manna
Sagði Jóhanna — 29 Jan 2005 @ 10:37
Ég á afmæli í dag! Vei!
Sagði Sigrún — 03 Feb 2005 @ 6:09