- Lyfjaóðir Kanar - 28 Jan 2005
-
Já, Kanar eru pillu óðir. Eina sem þeir aulýsa í sjónvarpi eru lyfseðilskyld lyf og bílar. Ég fór til að mynda í læknisskoðun i gær út af bílprófinu - það þarf víst að láta lækni skrifa upp á að maður sé með labbir og hendur - sama heimskulega systemið og heima, munurinn er bara sá að í stað þess að krossa sjálfur i reit sem segir að maður misnoti ekki eiturlyf þá gerir læknirinn það fyrir mann. Jæja þar eð ég var að koma í fyrsta skipti á heilsugæslu stúdenta þá varð ég að fylla út alskonar pappíra um sjúkarsögu mína og var meðal annars spurð að því hvort að ég hafi nýlega fengið stífkrampasprautu, maður á víst að fá hana á 10 ára fresti til að viðhalda ónæminu. Ég vissi fyrst ekkert hvað hjúkkan var að tala um og hún byrjaði að útskýra, ef þú stígur á ryðgaðan nagla eða hundur bítur þig o. s. frv. þá verður þú að vera sprautuð.
Ég hugasði að það væri náttúrulega bara best að taka þess sprautu - veit ekki í hverju ég hefði lent hefði ég bara sagt nei takk. Mér er sem sagt óhætt að stíga á ryðgaðan nagla næstu 10 ár! Eitthvað sem maður vill helst geta gert, er það ekki?
-
3 svör
Janúar, 2005
- Vá! - 26 Jan 2005
-
Á föstudaginn fáum við heimsókn frá Sony með nýjasta vélmennið sitt QRIO, þessi litli trítill getur hlaupið, hoppað, haldið jafnvægi á brimbretti, þekkt andlit og raddir, talað við litla krakka, kastað bolta, haldið uppi samræðum, reist sig við eftir að honum er hrint og er með innbyggt þráðlaust net.
Það er ekki víst að þessi verði seldur úti í búð og eru menn að giska á 50 kílódollara í verð, kannski takmarkaður markaður en þessir Japanir eru svo kexruglaðir þegar að það kemur að tæknidóti. Mig langar í einn svona meira en Svenna langar í segla!
-
5 svör
- Á leiðinni heim - 18 Jan 2005
-
Jibbíkóla, við vorum að festa kaup á einu stykki miða, eða tveimur stykkjum, til Íslands. Þökk sé góðu gengi dollarsins þá reynist þetta vera um 27 þúskall á mann eða rúmlega 850 dollarar fyrir okkur bæði. Við lendum svo á klakanum 4. mars og förum aftur þann 13.
Þegar heim er komið verður meðal annars
- bragðað á góðu vatni
- skellt sér í sund og heita potta
- hitta vini og vandamenn
- og auðvitað að skella sér á American Style
-
11 svör
- Heilsuátak … - 16 Jan 2005
-
… eða ekki! Já, nánast allir sem ég þekki eru í heilsuátaki þessa dagana eins og lesa má um á fjölda bloggsíða - á meðan hakka í mig OREO og hugsa ég um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég er ekki ánægð með mig þessa dagana!
Veit reyndar ekki alveg hvað ég á að gera, ég held ég þurfi ekki að grennast neitt af viti, meira svona að fá stinnan rass og massa upphandleggi svo að maður muni nú líta vel út í brúðarkjólnum eða bara líta vel út.
Hér kemur svo ekki-tæmandi-upptalning yfir það sem ég þarf að gera:
1) Vax
2) Klipping
3) Fara að æfa
4) Taka bílpróf
5) Analysera SNP-gögn fyrir 4. feb
6) Vakna fyrr á morgnanna
7) Ekki gleyma því að fara að æfa
8) Hætta að naga neglur, aftur!Er búin að panta tíma í fjórum brúðarkjólabúðum til að fara í þegar mamma og Bryndís koma og ætla að bæta þeirra fimmtu við. Vona að þetta muni duga til að finna draumakjólinn!
-
5 svör
- Ég von’ann komi kagganum í lag … - 10 Jan 2005
-
… á morgun. Á föstudaginn síðasta vorum við Jóhanna föst í umferðarteppu á I-376 og þá fór auðvitað vatnskassaslang í sundur og kælivökvi út um allt, mjög hressandi. Þetta þýddi að við þurftum að skrá okkur í AAA og fengum bílinn dreginn á bílaverkstæði rétt hjá okkur. Bíllinn var svo kominn í lag, eða sæmilegt lag seinna um kvöldið.
Það furðulega sem var að honum, og við héldum að hefði eitthvað með sjálfskiptinguna að gera, var að upp brekkur og eftir svona eins og hálfs til tveggja tíma keyrslur var eins og það vantaði allan kraft í hann og hann virtist skipta upp og niður um gíra. Ég fór hins vegar með hann á þjónustuverkstæði fyrir Ford í morgun og þeir fundu ekkert að en vildu hafa hann yfir daginn til að kíkja betur á hann. Síðan fékk ég símhringingu í dag þar sem þeir komust að vandamálinu (Haffi, hlustaðu vel): bensínpumpan var í ólagi. En þar sem að bíllinn er 2000 módel er hún enn í ábyrgð hjá Ford svo að við þurfum ekki að blæða út fyrir henni og þetta á víst að kosta ca. 100$ að laga. Svo það lítur allt út fyrir að kagginn komist í lag á morgun og vonandi helst hann bara þannig um ókomna tíð.
-
5 svör
- Jól og áramót 2004/2005 - 04 Jan 2005
-
Áttum yndisleg jól og áramót og var besti parturinn auðvitað að hitta Haffa og Brynhildi. Hér kemur smá yfirlit yfir jólavikuna hjá okkur í Pittsburgh.
23. des
Í dag var bara unnið og borðuð ýsa í kvöldmat - hér fæst ekki skata, hún telst víst ekki til matar hér.24. des
Vorum heima í rólegheitunum og undibjuggum jólamatinn, hangikjöt, uppstúf, grænar baunir og möndlugraut. Allt heppnaðist svona líka vel og urður jólin bara ósköp notaleg þrátt fyrir að vera bara tvö ein.25. des
Leti og göngutúr, ostar, kex og brauð með baunasalati og hangikjöti, jólaís.26. des
Jóhanna lá í leti og Palli lærði smá.27. des
Brunuðm til Baltimore og sóttum Haffa og Brynhildi til móðursystur Haffa í Sykesville (lítill krúttlegur bær fyrir utan Baltimore). Kíktum aðeins inn á hafnarsvæðið í Baltimore en keyrðum svo til baka til Pittsburgh. Á leiðinni tókst okkur að missa af exit inn af hraðbrautinni og keyrðum í gegnum mjög hugguleg (eða ekki) úthverfi Pittsburgh til að komast heim á Bayard Road, ferðin tók því lengri tíma en áætlað var.28. des
Deginum í dag eyddum við í að skoða skóla okkar Palla. Fórum m.a. upp á topp í “Cathedral of Learning” í skólanum hennar Jóhönnu. Kíktum svo á Walnut Street, sér í lagi í Apple búðina. Enduðum á einum af uppáhalds veitingastöðum okkar Palla, “Alladin’s”, upp í Squirrel Hill.29. des
Fórum til Falling Water, sem var sumarhús Kaufmanns fjölskyldunnar í Pittsburgh. Kaufmann rak stóra “department store” í Pittsburgh sem enn í dag er mjög stór og út um allt í Pennsylvaníu. Frank Loyd Wright teiknaði húsið en Edgar Kaufmann yngri, einkabarn Kaufmanns hjónanna, gaf húsið til náttúruverndarsamtaka í vestur Pennsylvaníu. Það sem er merkilegt við það er að hann labbaði bara út án þess að taka nokkuð með sér, svona rétt eins og þegar maður skreppur út í búð. Síðan vorum við á seinasta snúning og fórum á Pittsburgh óperuna að sjá Oklahoma söngleikinn, sem að mínu mati var stundum of langdreginn en samt skemmtilegur. Fólið sem sat fyrir aftan okkur var líka mjög tregt og vissi víst ekki að maður talaði ekki saman í leikhúsi. Fórum svo heim, við Brynhildur bökuðum pitsu og strákarnir fóru og keyptu bjór.30. des
Dagurinn fór í verslunarferð. Ætluðum svo að fara á Union Grill (Honest American Food) en vorum of sein og fórum í staðinn á Indian Garden.31. des
Vöknuðum snemma til að leggja af stað til NY. Komum inn í borgina seint í eftirmiðdaginn og höfðum okkur til fyrir kvöldið. Borðuðum á Benihana of Tokyo, sem Brynhildur og Haffi höfðu mælt með, það var upplifun og maturinn var sjúklega góður. Á þessum stað eru bara stór borð, svo að maður lendir alltaf í að sitja með ókunnugu fólki. Maturinn er síðan eldaður á hellu fyrir framan mann og sér listakokkur um eldunina og að leika sér með matinn og eldhúsáhöldin. Fórum síðan út að rölta og reyna að komast inn á “Ball Drop” svæðið, enduðum á að komast á góðan stað og sáum meira að segja kúluna - frekar litla að vísu, þar eð við vorum frekar langt í burtu. Fólk sem vildi vera alveg fremst mætti víst á staðinn klukkan 11 um morguninn, frekar magnað að nenna að standa úti í 13 klukkustundir. Það var samt ótrúlega rólegt í borginni þrátt fyrir að milljón manns væru á einum bletti enda var áfengi bannað á götum úti. Einu lætin voru þegar klukkan fór að telja niður í nýja árið. Fórum svo á “Hooters” eftir miðnætti til að fá okkur í glas en þar sem veskinu mínu var stolið eða týndist var ég ekki með nein skilríki og fékk því ekki neitt, við enduðum því á að gera eins og allir hinir og fara heim á hótel.1. jan
Fórum á Au Bon Pain og fengum okkur morgunmat. Skoðuðum neðri hluta borgarinnar og sáum svarta götulistamenn leika listir sínar. Borðuðum svo á elsta pitsastað í Bandaríkjunum og fengum alvöru eldbakaðar pitsur, reyndum svo að leita að Haagendaz en fundum ekki. Glöggir lesendur taka eftir hvað við Palli erum orðin amerísk, allt er mælt í því hvar er borðað og hverning maturinn smakkast!!!2. jan
Borðuðum aftur á Au Bon Pain enda alger snilld. Skoðuðum fjármálahverfið og World Trade Center svæðið. Skiptum svo liði, Jóhanna og Palli fóru aftur upp eftir en Brynhildur og Haffi skoðuðu sig um á World Trade Center svæðinu. Við Palli fórum í Bloomingdales, sem var dýr og flott. Hittumst svo upp á hóteli og fórum á TGI Fridays þar sem við Brynhildur fengum okkur sjúklega góða brownie í eftirmat.3. jan
Við Palli fórum að ná í bílinn og ákváðum að skilja hann eftir í stöðumæla bílastæðum fyrir utan hótelið á meðan við fengjum okkur morgunmat áður en lagt yrði af stað til BWI flugvallarins. Við tókum hins vegar ekkert eftir því að við mættum ekki leggja þarna (hversu fáránlegt er að hafa stöðumæla sem má ekki nota!) og litlu munaði að bíllinn væri dreginn í burtu. Þegar við komum til baka var nefnilega verið að setja bílinn upp á dráttarbíl svo að við rétt náðum að fá hann og $115 sekt. Það má segja að þetta hafi verið algjört lán í óláni. Jæja, við erum þá lögð af stað til Baltimore nema hvað bílinn byrjar að ganga mjög illa og við stoppum á bensín stöð við hraðbrautina, kallinn á bensínstöðinni sér að það er gat á einhverju röri og vatn frussast út. Hann kallar því á rafvirkja á “Motel 6″ sem reddar málunum. Það tók að vísu tvö tíma svo að við vorum orðin mjög stressuð með að ná ekki á flugvöllinn í tæka tíð, en allt reddaðist að lokum og við náðum á flugvöllin (við mælum með að gera alltaf ráð fyrir góðum tíma þegar ekið er um Bandaríkin!!!). Bíllinn gekk svo ágætlega á leiðinni heim en við ákváðum að taka “Lincoln Highway” í stað hraðbrautarinnar ef við myndm lenda í einhverju veseni og vorum því örlítið lengur á leiðinni og vorum komin á miðnætti.Þúsund þakkir og knús til Haffa og Brynhildar fyrir frábæra heimsókn. Myndir eru komnar á myndasíðuna.
-
7 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
