Desember, 2004

Halló - 26 Des 2004

Jóladagur var letidagur. Var á náttfötunum til fimm, drifum okkur þá í göngutúr, borðuð síðan kex og osta og smökkuðum á jólaísnum, hann var góður. Horfðum svo á “It is a wonderful live”, hún var mjög góð.

Áttum líka eins árs trúlofunarafmæli í gær, ví! Skoðuðm boðskort fyrir brúðkaupið á netinu, kíktum m.a. á svona “letterpress” prentun - hrikalega flott og hrikalega dýrt, það er út úr myndinni ;-)

Á morgun brunum við svo til Baltemore að sækja Haffa og Brynhildi - æði. Vorum líka að bóka veitingastað í NY á gamlárs.

P.s. var að setja inn myndir frá aðfangadegi.


3 svör
Aðfangadagur - 25 Des 2004

Þúsund þakkir heim til Íslands fyrir yndislegar gjafir og jólakort. Maturinn heppnaðsit vel í gær, hangikjötið var æðislegt, uppstúfurinn frábær þökk sé ráðleggingum frá mömmu og Birnu, grænu baunirnar voru góðar og möndlugrauturinn hrikalega góður að ekki sé minnst á malt og appelsín.

Palli fékk möndluna og tókst að láta mig fá mér meira!


3 svör
Allt og ekkert - 22 Des 2004

Hef ekkert að segja ákvað samt að blogga eitthvað þar sem tenging mín við Chimera virkar ekki þessa stundina svo að ég er atvinnulaus á meðan ég bíð eftir svari frá Hugen Tech Support fólkinu. Annars bara allt gott að frétta, var að fá einkunnirnar og gekk mjög vel, fékk ýmist H (hsu gefið) eða A (ABC gefið). Svolítið skrítið að fá sömu einkunn í kúrs þar sem maður fékk 100% fyrir allt og í kúrs þar sem velgengnin var ekki á eins háu stigi, væri einhvern vegin skemmtilegra að fá bara 10 og 9 eða 8 o.s.frv. en svona eru kanarnir ljúfir þegar kemur að einkunnum.

Það eru skrítin jól framundan - við Palli bara tvö ein í Ameríku. Hlökkum líka mikið til að fá okkur jólamat, hangikjöt að heiman, malt og appelsín … . Hlökkum líka enn meir til að hitta Haffa og Brynhildi og til að vera í NY á gamlárs.

Happy Holidays ;-)


2 svör
Jólaundirbúningur - 19 Des 2004

Þá er maður búin að gera ísinn, skreyta jólatréð (sjá myndir) og gera jólainnkaup. Kaupa grænar baunir (spurning hvort þær verði jafnjólalegar og ORA baunirnar), kartöflur í uppstúfinn, grautarhrísgrjón, vanillustöng, kirsjuberjasósu og möndlur - í þessum töluðu orðum þá man ég eftir möndlugjöfinni fyrir Palla.


5 svör
Prófin búin - 17 Des 2004

Já, kláraði prófin í fyrradag og skilaði lokaverkefni í gær. Þá tekur bara við vinna og meiri vinna fram að jólum. Ég þarf að vinna í verkefninu mínu og Palli að klára að fara yfir próf og undarbúa sig fyrir “quals” í byrjun janúar. Prófið í statistcal theory gekk mjög vel og líka í epidemiology en prófið í methods (sem á að vera léttasti kúrsinn) gekk ekki of vel. Mér tókst að klúðra seinasta dæmi, hugsaði einmitt í prófinu “skrítið að kennarinn vilja að við gerum þetta…”, ég var sem sagt eitthvað að misskilja. Lokaverkefnið í SAS og SPSS kúrsinum var skítlétt en tók ansi langan tíma, þ.e. ég eyddi allt of miklum tíma í það.

Þessi methods kúrs er hundleiðinglegur, kennarinn er að vernda fólk fyrir smá stærðfræði sem gerir það að verkum að ég skil ekki neitt. Vona að framhalds- kúrsinn eftir áramót verði betri því að þá verður ekki fólk úr öðrum deildum en biostat nema það hafi sérstakan áhuga. Annars finnst mér fáranlegt þegar sumum doktorsnemum í biostat finnst methods kúrsinn betri en theory kúrsinn. Hvað er það eiginlega að gera í doktorsnámi? Ef fólk skilur ekkert í theory hvernig getur það fengið PhD, ég hélt að doktorsnám snérist um að búa til nýjar aðferðir og leysa ný vandamál ekki finna öryggisbil fyrir meðaltal einhverra mælinga með fyrirfram gefinni formúlu.

Eyddi deginum í hálfgert afslappelsi í gær fór meira segja keyrandi ein og óstudd í Mall at Robinson og keypti jólagjöf fyrir Palla og reyndi að finna jólatrésfót í IKEA. Sótti svo Palla í skólann og við fórum og keyptum í matinn. Fórum svo í leiðangur að leita að jólatrésfæti, keyrðum og þvera og endilanga Pittsburgh og alls staðar var viðmótið “allt búið, þið eruð of sein”. Hvað er að Bandaríkjamönnum, vika til jóla og þeir eru bara tilbúnir með allt, ég átti ekki orð! Að lokum fundum við hins vegar einn fót í Target, þeir áttu meira að segja seríur á tréð líka. Öll sagan er ekki búin. Við brunuðum svo í Blindraskólann og ætlum að finna flotta furu og auðvitað “allar búnar”. Við enduðum á að kaupa “Douglas fur” sem þrufti að saga tvö fet neðan af til að komast inn í íbúðina okkar.

Setjum inn myndir þegar búið er að skreyta. Núna ætla ég niður í skóla að fara að vinna eitthvað.


3 svör
Jólin koma - 12 Des 2004

Loksins komu smá snjókorn, get nú ekki sagt að það hafi snjóað neitt en samt kærkomið að sjá smá af honum. Í sjónvarpinu dynja auglýsingar um jólahitt og þetta en í raunveruleikanum er (flest) fólk frekar afslappað og ekki ofskreytt, en sumir missa sig auðvitað. Við fengum hinn pakkann frá Mömmu og Jóni sem var fylltur með gjöfum, hangikjöti, EgilsMaltOgAppelsíni, þristum og síðast en ekki síst: jólasmákökum.

Um síðustu helgi voru jólagjafirnar keyptar og nú var þeim pakkað inn og þær sendar burt. Nú ætti það ekki að taka langan tíma að senda þrjá pakka út um víða veröld (já Svenni dótið þitt er í þessum pökkum). Ég gæti alveg sætt mig við að eyða hálftíma af lífi mínu inni á pósthúsi við þessa iðju. Þegar við sendum hins vegar pakkana af stað þurftum við einmitt að lenda fyrir aftan (a) par sem var að sækja um vegabréf (já á pósthúsinu!) og (b) það sem verra var eldri mann sem var með ávísun upp á x dollara og y sent og vildi kaupa frímerki fyrir nákvæmlega upphæð ávísunarinnar. Ég er ekki að grínast, hann vildi helst ekki Disney frímerkin og var ekki viss um hvort hann ætti að taka tíu eða tuttugu stykki af WWII Memorial merkjunum "Hvað á ég þá mikinn pening eftir?" Ímyndið ykkur 6 ára gutta að kaupa bland í poka fyrir 5þúsund kall. Og starfsfólkið var ekkert að flýta sér og bara tveir í afgreiðslunni, biðum örugglega 40 mínútur í röð og við vorum allan tíman númer tvö. Nú skilur maður af hverju fólk talar um að go postal. Jæja pakkarnir fóru á endanum og komast vonandi til skila fyrir jól.

Annars er skemmtilegra að segja frá því að við fórum að skoða jólatré áðan. Blindraskólinn er með sölu til styrktar sér og fullt af flottum jólatrjám. Okkur leist ekkert á það þegar minnstu trén voru tveggja metra há en við fundum eina flotta furu (já tveir metrar á hæð) sem kostaði bara 32 dollara. Það gerir bara tvöþúsundkall á þessum síðustu og verstu tímum dollarans. Við þurfum samt fyrst að kaupa fót undir tréð, gerum það seinna í vikunni og vonum að það sé enn á sínum stað.


8 svör
Helgin - 05 Des 2004

Ótrúleg leti réð ríkjum þessa helgi, sem annars átti að fara í lærdóm og annað því um líkt. Á föstudaginn bökuðum við pitsu og horfðum á Friends eins og svo oft áður. Á laugardaginn keyrðum við til Grove City til að fara í “Outlet Mall”. Þarna var fáránlega mikið af búðum, ég er enn að ná mér eftir átökin! Ekki það að mér finnist ekki gaman að versla og verði sjaldnast þreytt heldur gerði ég mér engan veginn grein fyrir stærðinni og fór pæjuskóm (háhæluðum stígvélum) í leið- angurinn. Þegar leið á daginn var það Palli sem tók við hlutverki mínu að vilja kíkja í þessa búð og hina búð, ég vildi helst bara setjast inn í bíl og bruna heim.

Núna er ég að bíða eftir að gagnagrunnsforritið sem ég þarf að nota í GSR verk- efninu mínu komi í hús. Það þarf helst að gerat fyrir 10. des því að þá fer öll mannerfaðfræðideildin til Indlands og þar með talinn Dr. Barmada sem ætlaði að hjálpa mér að komast inn í kerfið. Ég er nánast komin með samviskubit yfir að hafa ekki unnið neitt í þessum gögnum, sem er náttúrulega fáránlegt, ekki er það mér að kenna að forritið er ekki komið? Og ekki er það mér að kenna hvað það tekur dýrar vörur sem þessa langan tíma að komast í gegnum skriffinnskuna í skólanum?

Jólakassi frá mömmu og pabba kom í síðustu viku, þar leyndist ýmislegt góðgæti eins og Freyju hraunbitar sem við erum búin að vera að hakka í okkur.

Ég tek andköf á hverjum degi þegar ég kíki á mbl.is og sé hvað dollarinn hefur fallið eða krónan styrkst yfir nóttina. Hann er bókstaflega í frjálsu falli! Spurning hvort vörur sem fluttar eru inn frá Bandaríkjunum til Íslands lækki samt nokkuð.


3 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527