- Myndir frá heimsókn Kerrys - 21 Okt 2004
-
Var að setja inn nokkrar hreyfðar myndir frá komu Kerrys til Pittsburgh. Þarna var almennilegt stuð og mikil stemmning. Við biðum í langri röð til að komast inn á svæðið en þegar inn var komið var útihátíðarstemming á CMU campusnum, fagnarlætin gífurleg þegar John og Theresa Kerry mættu á svæðið.
Við Palli náðum að berja manninn augum og getum vonandi sagt 2. nóvember að forseti Bandaríkjanna hafi verið 10 metra frá okkur.
Miðsvetrarpróf í einum kúrsi hjá mér á morgun og ég að eyða tíma mínum í að setja inn myndir, metnaðurinn er bara alveg að fara með mig. Næsta próf er svo á mánudaginn og það þriðja á þriðjudaginn.
-
Jóhanna
6 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Gaman að sjá myndirnar, gangi þér vel í prófunum. MAMMA.
Sagði Þorgerður. — 22 Okt 2004 @ 6:04
Takk mamma, heyrumst um helgina
Sagði Jóhanna — 22 Okt 2004 @ 8:47
Ertu ekki grínast. Ég býst við svipaðir stemmningu þegar Össur mætir á kosningafund fyrir næstu kosningar.
Sagði Erling — 22 Okt 2004 @ 10:18
eg er ekki ad grinast, mer finnst thetta reyndar ekkert skrytid, madurinn er nu einu sinni ad berjast vid ovinsaelasta og ad margra aliti versta forseta i sogu Bandarikjanna, meira segja eru til republikanar sem eru ekki anaegdir med Bush, thad telst vist mjog ovenjulegt i theirra hopi
Sagði Johanna — 22 Okt 2004 @ 11:35
Ég þori nú samt að veðja við þig að hann verður áfram forseti…
Þetta klikkar aftur í Flórída og ef bróðir hans sem er fylkisstjóri þar reddar ekki málunum, þá sjá dómararnir í hæstarétti um málið, enda skipaðir af pabba hans.
Sagði Haffi — 26 Okt 2004 @ 11:50
Tala nú ekki um Diebold og “kosningavélarnar” sem skilja ekki pappír eftir sig. Fyndið að Bush skuli finna sig knúinn til að dreifa lýðræði út um allt, nema þá í Flórída.
Sagði Palli — 26 Okt 2004 @ 2:21