- 20 °C - 27 Okt 2004
-
Eins undarlega og það kann að hljóma á Íslandi þá er hitastigið í Pittsburgh 20°C í lok október. Það hefur nú reyndar ekki verið stanslaus hitabylgja en næst dagar verða eitthvað svipaðir. Samkvæmt tölfræðinni þá er Pittsburgh önnur mesta rigningarborg Bandaríkjanna - á eftir Seattle - það er nú reyndar ekki eins slæmt og það hljómar, þegar hann ringir þá er steypiregn í a.m.k. 1/2 tíma og alveg upp í heilan dag, en svo er bara allt búið í langan-langan tíma.
Allt gott að frétta, ég var að fá út úr tveimur prófum, 100/100 í ‘theory’ og 20/22 í ‘epi’. GSR verkefnið er í fullum gangi, ég er farin að skilja nýju gögnin mín aðeins betur og er byrjuð að reikna og prófa núlltilgátur í massavís.
-
Eitt svar
Október, 2004
- Haust í Pittsburgh - 25 Okt 2004
-
Veðrið hér í Pittsburgh hefur verið yndislegt undanfarnar vikur, þægilegt haustveður (lesist ekki íslenskt haustveður), ekki of heitt, ekki of kalt, ekki of rakt. Fórum í göngutúr í Schenley Park sem er rétt hjá CMU og nær yfir ansi stórt svæði og tókum myndir af haustlitunum - kíkið á myndasíðuna.
-
2 svör
- Myndir frá heimsókn Kerrys - 21 Okt 2004
-
Var að setja inn nokkrar hreyfðar myndir frá komu Kerrys til Pittsburgh. Þarna var almennilegt stuð og mikil stemmning. Við biðum í langri röð til að komast inn á svæðið en þegar inn var komið var útihátíðarstemming á CMU campusnum, fagnarlætin gífurleg þegar John og Theresa Kerry mættu á svæðið.
Við Palli náðum að berja manninn augum og getum vonandi sagt 2. nóvember að forseti Bandaríkjanna hafi verið 10 metra frá okkur.
Miðsvetrarpróf í einum kúrsi hjá mér á morgun og ég að eyða tíma mínum í að setja inn myndir, metnaðurinn er bara alveg að fara með mig. Næsta próf er svo á mánudaginn og það þriðja á þriðjudaginn.
-
6 svör
- Enn og aftur, nýjar myndir - 20 Okt 2004
-
Var að setja inn nokkrar myndir frá heimsókn mömmu, pabba og Grétu í september. Hef því miður ekki tíma til að skrifa neitt af viti núna, þarf að drífa mig í skólann.
-
Eitt svar
- Kerry á ferð og flugi - 19 Okt 2004
-
Á morgun verður erfitt að ferðast á milli bygginga í skólanum. Grasflötin á miðju skólasvæðinu verður troðin af ca. 10 þús manns, allir æstir í að heyra í John Kerry eða Jon Bon Jovi (eða bæði). Aðgangur er líka takmarkaður, þ.e. maður verður að hafa miða til að komast inn á svæðið, sem betur fer náði ég mér í einn slíkan í fyrradag og vonandi nær maður að berja átrúnaðargoðið augum á morgun (það er Kerry, ekki Bon Jovi)
Meiri fréttir á morgun.
-
Engin svör
- Leikhús, kaffi, kirkja, bjór - 17 Okt 2004
-
Við Jóhanna fórum á leikrit í CMU leikhúsinu í gær. Verkið sem við sáum heitir Arcadia eftir Tom Stoppard (sem skrifaði m.a. Rosencrantz and Guildenstern are Dead) og gerist árið 1809 og 1993. Leikhúsið er mjög flott, enda nýlega byggt og frammistaðan hjá leikurunum fín (sumir voru betri en aðrir, o.s.frv.)
Við fórum með Boris, Sean og Staciu, eftir leikritið var síðan sötrað kaffi. Eftir langa setu á kaffihúsinu, eða um kl. 8 (leikritið byrjaði kl. 2), ákváðum við að halda heim á leið. En þar sem engan langaði til að elda ákváðum við að fara að fá okkur eitthvað. Haldið var á Churck Brew Works sem er veitingastaður/bjórhús í fyrrum kirkju. Matseldin var amerísk og mjög góð, ég fékk mér Pittsburgh salat sem inniheldur auðvitað franskar kartöflur í salatinu, en Jóhanna lét sér nægja grænmetis pizzu. Bjórúrvalið var líka gott, engin vörumerki bara bjór hússins, sem reyndist vera mjög bragðgóður.
Dagurinn í dag fór hins vegar í lærdóm og aðra slíka vitleysu, verður það ekki tvíundað hér.
-
4 svör
- Nýjar myndir - 16 Okt 2004
-
Var að setja inn nýjar myndar af skrifstofunni minni. Þó allir GSR og TA nemendur fái skirfstofu eru þær ekki allar eins og mín telst í betri kantinum. Í skrifstofunni sem ég er í eru fimm aðrir nemendur en allar skrifstofurnar eru básaðar niður, sumar skrifstofur hafa færri nemendur saman en ekki í svona básum. Ég ímynda mér að það sé meiri vinnufriður hjá mér.
Reyndar hafa nokkrir nemendur verið að bögga, alltaf að spyrja hvort ég sé búin með þessi og hin heimaverkefni eða hvort við eigum að ræða námsefni, sem þýðir að ég eigi að útskýra fyrir þeim af því að ég er með bakgrunn í stærðfræði, hversu fáránlegt er það
Ég var frekar pirruð á fólki því að það virtist ekki bera neina virðingu fyrir því að ég þyrfti að læra eða vinna í GSR, nei nei ég átti að útskýra dæmin fyrir þeim út af því að það skyldi þetta ekki almennilega, ein stelpan sagði meira að segja við mig að við ættum að vinna saman að heimaverkefnunum af því að hún hefði ekki bakgrunn í stærðfræði, hversu frekt getur fólk verið. Jóhanna töffari sagðist ekki vilja vinna í hóp því það tæki allt of mikinn tíma. Málið er nú ekki að ég vilji alls ekki vinna í hóp, hópar eins og gamli góði heimadæmahópurinn úr 6-X virka út af því að allir læra eitthvað og fólkið er skemmtilegt. Hópar þar sem einn kann að hluttegra virka ekki!
Nokkrir hafa líka spurt hvort þeir megi bera saman heimaverkefni, í sakleysi mínu segi ég auðvitað já. Síðan kemur bara í ljós að fólk er ekki búið með helminginn af dæmunum og segist vilja fá að ljósrita dæmin mín, hvað á maður að segja. Ég ákvað nú að vera frek við eina og spurði til hvers, hún sagðist ekki ætla að kópera dæmin mín upp heldur bara bera við sínar lausnir og fá hjálp ef á þyrfti að halda -sem sagt kópera dæmin mín.
Ég held reyndar að fólk -annað en Íslendingar- sé of vant því að heimadæmi gildi alltaf eitthvað í lokaeinkunn svo að það gerir allt til fá fullkomnar lausnir, alveg sama þó það skilji ekkert í lausnunum, kemur svo í prófið og getur ekki neitt. Ómannúðlega íslenska kerfið virðist vera gott fyrir alla -líka aulana. Mér líkar nú samt betur við að heimadæmin gildi, sérstaklega þegar maður leggur á annað borð vinnu í þau.
-
3 svör
- Nettengd - 14 Okt 2004
-
Ég er loksins orðin nettengd í skólanum, ferlegt hvað maður er orðinn háður netinu. Það er ekki nóg með að maður “þurfi” að skoða póstinn sinn á 10 mínútna fresti heldur byggir öll vinnan mín fyrir Dr. Weeks á því að ég sé tengd inn á Chimeru.
Síðustu kappræðurnar voru í gærkvöldi, eins og áður fylgdumst við Palli með, alveg miður okkar yfir því að Bush eigi raunverulega möguleika á að verða endurkjörinn. Í fyrradag sáum við þátt um frambjóðendurna, frá því fyrir Víetnam til dagsins í dag. Þátturinn var á PBS sem telst óháð sjónvarpsstöð og af því sem við höfum séð er ekki annað að sjá en svo sé, þátturinn sagði bara frá staðreyndum um frambjóðendurna, engar ýkjur, ekki himinháar tölur o.s.frv. , Bush kom verr út en maður hefði getað ímyndað sér (þó álitið sé nú ekkert allt of hátt fyrir), maðurinn hefur bókstaflega ekki átt nokkurn hlut sem hann hefur fengið skilinn, alltaf notað sóðaaðferðir og borið út áróður um andstæðinginn, sem er langt frá því að vera sannur, hvað þá að það finnist nokkurt sannleikskorn í honum.
Annars er allt gott, þrjú próf framundan, leikhúsferð í CMU leikhúsið á laugardaginn og bara brjálað að gera.
-
Engin svör
- Hvalfjörður vs. Hvalfjarðargöng - 11 Okt 2004
-
Ótrúlegt hvað mér tekst stundum að gera allt of einfalda hluti allt of flókna. Þessa dagana er ég að vinna með gögn úr einni fjölskyldu, þar sem margir þjást af aughrörnunarsjúkdómi sem getur leitt til blindu. Markmiðið er að staðsetja gen sem ábyrg eru fyrir sjúkdómnum, ein leið til að meta tengslin er að reikna svokölluð LOD score. Í gær var ég sem sagt að berjast við reikna þau með vitesse eða réttara sagt berjast við Mega2 til að fá gögnin á vitesse formi.
Eins og gengur og gerist þá geta menn ekki komið sér saman um staðlað input í forritin sem þeir skrifa svo að oft eyðir maður allt of miklum tíma í að berjast við “formött”. Dr. Weeks endaði á því fyrir nokkrum árum að skrifa forrit (Mega2) sem getur breytt gögnum þínum milli formatta á auðveldan hátt. Ég gerði mér ekki grein fyrir einum snjöllum möguleika í Mega2 og eyddi heilum degi í að skrifa awk forrit til að laga gögnin mín, komst svo að því í morgun að ca. 1 mín. hefði meira en nægt.
Ég fékk hins vegar góða æfingu í awk og Palli líka. Þó svo Palli þrufi ekkert að læra á awk þá finnst honum einhvern veginn að hann verði að kunna eitthvað agnarlítið, fyrst ég geri það. Fyrir þá sem halda að awk sé lélegt þá er það alveg frábært til að nota á gögn sem geymd eru á dálkaformi í textaskrám, það er ekkert eins og C++ eða Java, maður þarf ekki að skrifa heilu dálkana af upphafsorðum og breytuskilgreiningum, mjög hentugt.
Við erum búin að skrá bílinn okkur hjá leigusalanum og búin að fá límmiða í gluggann til að geta lagt fyrir framan húsið. Svo er bara spurningin hvort maður kaupi sér sitt bílastæði, það er líka boðið upp á bílastæði (inni) á $35 á mánuði, sem telst mjög ódýrt hér um slóðir, fólk er að borga allt upp í $85 fyrir einn mánuð á sumum stöðum.
-
Eitt svar
- Bíll - 09 Okt 2004
-
Jibbí! Við höfum eignast bíl. Eyddum deginum á bílasölum í umhverfis Pittsburgh og enduðum á að kaupa svartan Ford Focus 2000 árg (sedan SE). Við snillingarnir fengum verðið niður um $1000, fyrst lækkuðum við verðið um $500 með því að þykjast ekki hafa áhuga, síðan leist okkur illa á skattinn ofan á verðið þannig að á endanum, bauð bílasalinn okkur bílinn á $5400 með skatti, númeraplötu og öllum pakkanum, það þýddi sem sagt að verðið á bílnum sjálfum fór úr $5900 niður í $4900. Ekki amalegt! Myndir koma bráðlega, það er orðið of dimmt núna fyrir myndatöku.
Nýjar myndir komnar inn ;)
-
9 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
