- Gestirnir farnir - 28 Sep 2004
-
Mamma, pabbi og Gréta fóru í morgun, skutluðu mér í skólann og héldu svo til Baltimore. Það var alveg frábært að fá þau og nú hlökkum við Palli bara til að fá næstu gesti. Á laugardaginn síðasta fórum við öll í Moraine State Park sem er svona klukkutíma norður af Pittsburgh, fórum í göngutúr og slöppuðum af. Það var ansi afslappað að vera þarna því að aðaltíminn er búinn svo að þarna var varla sála um kvöldið fórum við á Station Square sem er veitinga- og skemmtistaða hverfi niður í miðbæ fórum svo upp á Mt. Washington og kíktum á útsýnið.
Verkefnið mitt gengur nokkuð vel, það er reyndar í biðstöðu akkúrat núna því að ég fann nokkrar villur í gögnunum og en ég er bara nokkuð ánægð með mig, því að Dr. Weeks sagðist impressed yfir því að ég hefið fundið þær. Á meðan við bíðum eftir að gögnin verði yfirfarin þá fæ ég önnur gögn úr sama verkefni til að skoða og analysera. Þau eru öðruvísi en hin því að þau verða casa-control gögn. Síðan sagði Dr. Weeks að einhver rannsóknatengd vandamál (rannsóknatengd en ekki bara gagnavinnsla) sem vektu áhuga minn mætti ég tala við hann um það og ég gæti jafnvel byrjað að vinna í doktorsverkefni líka - þó ekki á fullu dampi - og að auki á nafnið mitt að vera á næstu grein um GARM (verkefnið sem ég er í) - það er eins gott að maður standi sig!
Hef ekki tíma til að skrifa meira, þarf að fara að gera heimaverkefni um PubMed leit. Ekki mjög skemmtilegt en samt mjög gagnlegt að læra á þessar leitarvélar, þær geta svo miklu meira en ég vissi, ég hélt einhvern veginn að þetta væri bara blátt áfram en það er ótrúlega mikið af gagnlegum fítusum faldir hér og þar.
-
4 svör
September, 2004
- Heimsókn - 23 Sep 2004
-
Mamma, pabbi og Gréta eru í heimsókn hjá okkur núna. Þau komu í heimsókn til mín í skólann í dag til að taka út staðinn og hittu líka Dr. Weeks. Síðan fórum við upp á topp í Cathedral of Learning og horfðum yfir borgina - útsýnið var magnað, sérstaklega vegna þess að það hefur verið hreint norðlægt loft hérna síðustu daga svo að mystrið var mjög takmarkað. Þau fóru síðan í Ross Park Mall en ég og Palli héldum í skólann.
Prófið í epidemiology gekk vel, það var frekar auðvelt og ég fékk fullt hús stiga, hvorki meira né minna.
Þau voru að koma klyfjuð úr mollinu og komu m.a. með sjónvarp handa okkur. Jibbí.
-
5 svör
- Social Security Number - 15 Sep 2004
-
Social Security Number (SSN) er ein heimskulegasta kennitala sem ég veit um. Fáránlegt að í raun sé númerið ekki gilt sem slíkt nema þú hafir sérstakt Social Security Card með því á, það er greinilega eitthvað laustengt manni sem manneskju. Hugsið ykkur ef maður mætti ekki muna kennitöluna sína heima, nei hún er ekki gild nema maður sé með það skrifað á bréfsnifsi og ef þú týnir því eða pósturinn týnir því þegar hann á að senda það til þín þá ert þú bara ekki með kennitölu - þú ert bara ekki til og það má ekki borga þér laun (a.m.k. ekki ef þú ert útlendingur).
Ég þurfti sem sagt að fara aftur niður í miðbæ og sækja um nýtt SS card ekki númer heldur kort því að ég fékk það ekki sent með póstinum eins og lög gera ráð fyrir. Ég þarf sem sagt að vona að kortið skili sér í þessari tilraun, ef það gerir það ekki þarf ég væntalega að fara að sækja um nýtt og þá má ekki borga mér laun. Launagreiðanda er aðeins leyfilegt að borga manni laun einu sinni án þess að hafa fengið afrit af SS kortinu.
Jæja, hvað um það, það eru skemmtileg vika framundan, mamma, pabbi og Gréta koma í heimsókn á næsta þriðjudag, sem verður æðislegt. Síðan er allt komið á fullt í skólanum og ég er búin að fá fyrst alvörudatasettið mitt til að analysera, að vísu er Dr. Weeks búin að analysera það en viðbótar niðurstöður um nokkra einstaklinga hafa bæst í safnið svo ég fæ að æfa mig á þessu datasetti. Það sem er gott við að búið er að analysera gögnin er að þá er auðveldara að sjá hvort ég hafi fattað allt og gert allt rétt. Ég fer svo í fyrsta prófið mitt hér í GSPH (Graduate School of Public Health) á þriðjudaginn næsta. Það er í epidemiology og verður örugglega ekki mjög erfitt en leiðinlegt því að það er krossapróf.
-
5 svör
- Enn fleiri myndir - 10 Sep 2004
-
Myndirnar eru að hrúgast inn á síðuna. Núna hefur íbúðin verið dokúmenteruð í þaula og deilt með heimsbyggðinni.
Annars allt gott, veðrið hefur verið æðislegt síðustu daga, við Jóhanna erum að vona að mollan sé búin í bili og haustið haldist svona til jóla. Gott veður hérna er að okkar mati, veður sem leyfir gallabuxur sem ekki klístrast við mann.
Nú höfum við öruggar heimildir fyrir því að Whole Foods muni byrja að selja alíslenskt lambakjöt um leið og búið er að slátra því heima. Prófuðum að kaupa íslenskan lax hérna og hann var ekki síðri en heima, enda íslenskur og komin í búðina sólarhring eftir slátrun.
Við fengum David og Tessu í mat og þeim virtist ekki verða meint af laxinum. Við elduðum hann á mjög einfaldan hátt, bara sítrónupipar, smá smjör, dill/gúrkusósa, rauðar kartöflur, salat og ástralskt hvítvín.
-
7 svör
- Nýjar myndir - 07 Sep 2004
-
Eftir langa bið og mikið kvart á skilaboðum hef ég loksins drifið mig í að setja upp myndasíðu. Þetta ætti nú allt að skýra sig sjálft, fyrst birtast titlar sem má klikka á, þá birtast litlar myndir og ef á þær er smellt birtist stærri útgáfa, göldrum líkast! Fyrstu myndirnar sem við settum inn eru frá fyrstu dögunum þegar við vorum að koma okkur fyrir og þrífa íbúðina. Von bráðar birtist ítarleg úttekt á íbúðinni sjálfri, hverfinu okkar og CMU og Pitt campusum.
Hitinn er enn að drepa okkur, rakinn var mikill í gær og í dag og nauðsynlegt er að innbyrða marga lítra af vatni til að lifa af og fá ekki hausverk, sérstaklega svo Jóhanna fái ekki hausverk.
Jóhanna hitti Dr. Weeks út af verkefninu í dag. Verkefni þessarar viku er að gera æfingar um linkage analysis og lesa 6 greinar um efnið til að skilja bakgrunninn almennilega.
Sjálfur er ég enn varla byrjaður í skólanum, aðeins einn af þremur kúrsum er byrjaður, hinir tveir (í tölvunarfræðideildinni) byrja í næstu viku.
-
6 svör
- Kosningar - 03 Sep 2004
-
Eins og flestir vita þá eru forsetakosningar framundan hér í Bandaríkjunum. Pennsylvania er eitt af svokölluð swing states því að atkvæðin falla yfirleitt ca. 50/50, baráttan er því mjög hörð hérna. Ég hef reyndar ekki hitt einn einasta mann sem er með barmerki eða eitthvað því um líkt til stuðnings Bush og þeir sem láta skoðun sína uppi eru einarðir demókratar. Ég var meira að segja í tíma í dag þar sem fyrirlesarinn var að tala um sögu public health sem vísindagreinar, hann nefndi ýmis dæmi um vandamál sem glíma hefur þurft við og hvað stæði í vegi fyrir að framförum o.s.frv., það kom skýrt í ljós að repúblikanar (þó Roosevelt hafi verið ágætur, í hans tíð voru Bandaríkjamenn næst því í sögunni að gera heilbrigðiskerfið opið öllum) og kirkjur voru ekki hans uppáhald. Í lokin bað hann svo alla að kjósa.
Mætti einnig á fyrsta fyrirlesturinn í Statistical Genetics Journal Club and Reading Group. Þetta verða vikulegir fyrirlestrar um efni úr statistical genetics og þemað þetta misseri er sálfræðilegir eiginleikar, hvernig unnt er að ákvarða svipgerðir tiltekinna eiginleika eins alkóhólisma fyrirfram (psychiatric traits, examining phenotyping and genetic issues) og er bara nokkuð áhugavert, hrikalega er maður að verða mikill graduate nemi.
Annars allt gott, veðrið hefur verið fínt síðustu daga og hægt að sofa á nóttunni.
-
6 svör
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
