Skrifstofa - 30 Ágú 2004

Já, ég er næstum búin að fá skrifstofu, reyndar hefur ein verið skráð á mig en fyrir mistök skráð á einhvern annan svo greyið konan sem sér um þetta var alveg miður sín þegar þetta kom í ljós. Ég veit ekki hvort það var vegna þess að þá þarf hún að stússast í að laga þetta eða hvort það er mín vegna. Ég gæti líka þurft sérstakt skrifborð því að Dr. Weeks ætlar að láta mig hafa mína eigin tölvu, ef þetta er venjuleg borðtölva þá þarf að vera tengi fyrir hana við skrifborðið - það er víst ekki alls staðar - en ef ég fæ fartölvu þá verður þetta minna mál fyrir konuna.

Kúrsar byrjuðu í dag. Fyrsti kúrsinn minn hérna kallast Intro to statistical methods 1, mér leist mjög vel á kennarann og mikið eru Kanar mannúðlegir í einkunnagjöf fyrir kúrsa, heimaverkefni gilda 30%, miðsvetrarpróf 35% og lokapróf 35% og að auki er verstu heimaverkefnaeinkunn sleppt. Þetta þýðir samt meiri vinna en minna stress (samt heilmikið stress) í lokin, ég kann að meta það.

Á eftir er Picnic í GSPH fyrir nemendur, starfsfólk og kennara, fjölskyldur þeirra og vini. Hér fögnum við nefnilega ‘’the beginnig of new academic year'’.

Jóhanna Jóhanna

12 svör

  1. hæ, gaman að heyra að allt er að ganga vel hjá ykkur,þó líklega líti út fyrir að verða mikið að gera í vetur :-)
    …en þá leiðist ykkur ekki á meðan.
    Allt gott að frétta af okkur og gaurunum. Einar er sáttur við leikskólalífi með bróður sínum og Orri er ánægður með að vera byrjaður í skólanum - ég er hinsvegar mjög ánægð með að byrja ekki fyr en á mánudag næsta.
    Gangi þér vel Jóhanna í öllusaman og Palli líka.
    kveðja Björg

    Sagði Björg — 30 Ágú 2004 @ 9:32

  2. Sæl bæði tvö. Alltaf gott að heyra frá ykkur. Allir byrjaðir á vetrarstarfi.
    Helga Dóra og Adolf eru mjög ánægð í Tækniháskólanum. Halldór er ánægður í Versló,en talar nú ekki af sér um skólann. Kristín sátt í M.H. hún hefur ákveðið að útskrifast næsta vor. Fanney byrjuð í 10 bekk,vonandi losnar hún við kennaraverkfall.
    Og svo er allt að fara á fullt hjá Grétu og Gumma. Og ég ánægð að vera
    “bara heima”. Kveðja MAMMA.

    Sagði Þorgerður. — 31 Ágú 2004 @ 10:32

  3. Hvað er þetta - komiði með einhverjar djammsögur :)

    Kveðja,

    \begin

    Sagði Beggi Frændi — 31 Ágú 2004 @ 1:30

  4. Gott að heyra að allt gengur ágætlega og þið ánægð. Allt gott að frétta af okkur. Bestu kveðjur frá Brúnastöðum :-)

    Sagði Bryndís, Fanney og Jóhann — 31 Ágú 2004 @ 7:44

  5. Hæ elskurnar
    Gott að geta fylgst með ykkur í gegnum bloggið og sjá að allt er á góðu róli. Mér líkar vel að sjá þetta námsmat - skilar örugglega betri árangri og skapar minna stress - vit í þessu. Gangi ykkur allt í haginn. mamma og Jón

    Sagði mamma og Jón — 31 Ágú 2004 @ 9:33

  6. Heyr heyr Beggi frændi!

    Sagði Tóta — 01 Sep 2004 @ 4:26

  7. thvi midur Tota og Beggi, vid hofum farid i tvo party og hvorugt var thad fjorugt ad einhverjar skemmtilegar sogur hafi komid ut ur thvi, en thad a kannski eftir ad breytast, fylgist med :-)

    Sagði Johanna — 01 Sep 2004 @ 6:42

  8. Palli, ég mun elska þig að eilífu! Fékk 8 í stæ IV. Takk, takk, takk fyrir hjálpina!

    Sagði Tóta — 02 Sep 2004 @ 12:18

  9. Va, til hamingju Tota
    Knus, Johanna

    Sagði Johanna — 02 Sep 2004 @ 6:27

  10. Hae skvis,gaman ad geta fylgst med ykkur svona a netinu og heyra ad allt gangi vel. Matt senda mer linu svo eg fai meilid thitt ;)
    Knus og kram fra Sviariki

    Sagði Ragnhildur — 02 Sep 2004 @ 7:44

  11. he he ég var nu ekki alveg jafngóð og Tóta í stærfgf.IV… en ég náði;)
    blikk og bros

    Sagði harpa — 02 Sep 2004 @ 8:50

  12. Til hamingju líka Harpa, þið eruð báðar snillingar. Blikk og bros

    Sagði Jóhanna — 03 Sep 2004 @ 12:49

Skilaboð frá þér


Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 4 Bayard Rd, Apt 61
  • Pittsburgh, PA 15213

Heimasími

  • 412-687-2849

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527