- Real data - 24 Ágú 2004
-
Gærdagurinn gekk bara nokkuð vel. Ég var á þönum um campussvæðið. Byrjaði á því að fara á fund með Dr. Weeks og hópnum hans, í hópnum voru nokkrir nýir postdoc og nokkrir nýir doktorsnemar. Verkefnið sem ég er í felur í sér mikla vinnu með raunveruleg gögn úr mönnum, ég þarf því að skrifa upp á enn eitt siðfræðiplaggið sem fjallar um rannsóknir á mönnum. Ég er nú ekki alveg viss um hvað verkefnið fjallar en það kallast a.m.k. Genetics of age-related maculopathy (GARM) og felur í sér vinnu með SNP gögn (SNP=single nucleotide polymorphism).
Því næst hitti ég Dr. Feingold, sem ég mun líklega vinna fyrir á vormisseri. Hún hjálpaði mér að velja kúrsa. Það var nú reyndar ekki svo erfitt, þar eð ég er á fyrsta misseri og þá taka allir nokkurn veginn það sama. Ég mátti sleppa einum kúrs fyrir þá sem ekki kunna neitt í stærðfræðigreiningu né línulegri algebru. Ég varð mjög ánægð þegar Eleanor (Dr. Feingold) mælt með quantitative genetics (upp á íslensku: erfðafræði magnbundinna eiginleika, sem hljómar örugglega ekkert betur), mig langaði nefnilega að taka hann og spáði ekkert í það því hann hefur nokkra kúrsa í forkröfur og þar sem ég er ný þá er ég auðvitað ekki búin að taka þessa kúrsa. Það gekk hins vegar ekki vegna þess að hann rakst á annan kúrs sem ég verð að taka. Þá hófst leitin að öðrum áhugaverðum kúrs og nú hef ég val um þrennt: kúrs úr læknaskólanum um bioinformatics, kúrs um public health population genetics eða tölfræðikúrs úr tölfræðideildinni. Ég hugsa að tölfræðikúrs eða bioinformatics sé málið.
Þá tók við pappírsvinna á skrifstofunni og ég þeystist frama og til baka milli ritara, ritari sem sér um þetta og annar sem sér um hitt. Allt gekk þó á endaum og ég er komin með dummy SSN (social security number) og komin með pappíra til að sækja um officialt SSN. Það sem ég á eftir að gera núna er að láta vita að Ísland og USA hafa tax treaty og fylla út form um það og fylla svo út form þannig að hægt sé að borga mér laun.
Því næst þarf ég að finna út hvort nóg sé að hafa dummy SSN til að fá heilbrigðistryggingu frá skólaunum (UPMC Graduate Student Health Plan), því þá þarf ég ekkert að borga en venjulega þarf fólk að borga $800 og upp úr á ári, það fer eftir því hvað heilbrigðiskerfið er gott í þínu heimalandi. Palli þarf til dæmis að borga $800 en í raun kemur það út á eitt núna því að hann er með rúmlegar $100 meira í laun en ég á mánuði og fær laun mánuði lengur en ég, é endanum skaffar hann $100 meira til heimilisins.
Reyndi líka að kaupa bækur og svoleiðis í gær. Það er dálítið merkilegt hvað public health og læknisfræði eru mikill partur af háskólanum, þessar deildir hafa sína eigin bókabúð á meðan allt annað hýrist saman í einni bóksölu. Ég keypti bara eina bók fyrir kúrs sem hafði hana sem skyldubók, ég ætla að sjá hvað kennararnir segja í hinum kúrsunum.
Núna þarf ég að fara í computer clusture training fyrir verkefnið og á morgun að taka próf um Research & Practice Fundamentals og líka um enskukunáttu. Það er bara allt á fullu.
-
Jóhanna
2 svör
Skilaboð frá þér
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527

Gott að heyra að allt gekk vel í gær, og ágætt að allt sé að fara í fastar skorður. Belss MAMMA.
Sagði Mamma — 24 Ágú 2004 @ 12:48
Það er bara brjálað að gera hjá ykkur! Nú er ég í Köben í rólegheitunum og þræði H&M búðirnar. Hitti Sigrúnu og Erling í gær og fyrradag, voða huggó. Frábært að geta fylgst með hvað þið eruð að gera. Kossar og knús til ykkar beggja ;)
Sagði Tóta — 26 Ágú 2004 @ 8:03