- Skrifstofa - 30 Ágú 2004
-
Já, ég er næstum búin að fá skrifstofu, reyndar hefur ein verið skráð á mig en fyrir mistök skráð á einhvern annan svo greyið konan sem sér um þetta var alveg miður sín þegar þetta kom í ljós. Ég veit ekki hvort það var vegna þess að þá þarf hún að stússast í að laga þetta eða hvort það er mín vegna. Ég gæti líka þurft sérstakt skrifborð því að Dr. Weeks ætlar að láta mig hafa mína eigin tölvu, ef þetta er venjuleg borðtölva þá þarf að vera tengi fyrir hana við skrifborðið - það er víst ekki alls staðar - en ef ég fæ fartölvu þá verður þetta minna mál fyrir konuna.
Kúrsar byrjuðu í dag. Fyrsti kúrsinn minn hérna kallast Intro to statistical methods 1, mér leist mjög vel á kennarann og mikið eru Kanar mannúðlegir í einkunnagjöf fyrir kúrsa, heimaverkefni gilda 30%, miðsvetrarpróf 35% og lokapróf 35% og að auki er verstu heimaverkefnaeinkunn sleppt. Þetta þýðir samt meiri vinna en minna stress (samt heilmikið stress) í lokin, ég kann að meta það.
Á eftir er Picnic í GSPH fyrir nemendur, starfsfólk og kennara, fjölskyldur þeirra og vini. Hér fögnum við nefnilega ‘’the beginnig of new academic year'’.
-
12 svör
Ágúst, 2004
- Tröllasögur - 29 Ágú 2004
-
Alvara lífsins tekur nú við á morgun því þá byrja kúrsar. Reyndar bara hjá Jóhönnu því ég er bara í einum tíma á mánu-/miðvikudögum og þeir byrja eftir tvær vikur, ég dunda mér þá bara við að koma myndum upp á morgun. Annars er mest lítið að frétta af okkur, helgin fór í afslappelsi og Jóhanna þurfti að lesa reglugerðir skólans um greinaskrif, styrkjaumsóknir, óeðlileg tengsl við fyrirtæki, upplýst samþykki og lífsýnameðhöndlun. Hljómar spennandi og eitthvað sem maður vildi helst fara á hundavaði yfir en í lok hvers kafla var próf úr efninu svo að hún slapp ekki við það.
Annars er mér hætt að lítast á blikuna hvað varðar einn kúrsinn. Einn nemandi sem gerði tilraun til að taka hann sagði að kennarinn mælti ekki að taka neinn annan kúrs með þessum og almennt séð ekki eiga sér neitt líf utan hans. Það er náttúrulega ekki á það bætandi að maðurinn er með skerta sjón og glærurnar hans eru víst óskiljanlegar. En þeir sem að hörkuðu þetta af sér á sínum tíma sögðu að þetta væri virði þess. Maður má náttúrulega ekki láta svona tröllasögur hafa áhrif á sig en ég þarf greinilega að hafa plan-b tilbúið á næstunni.
Jæja nú er maturinn að koma úr ofninum og masinu lýkur í bili
-
2 svör
- Ógeðslegur hiti - 25 Ágú 2004
-
Það er ekkert grín að vera Íslendingur hérna, ég er ansi hræddur um að við Jóhanna vorum ekki búin til fyrir svona hita. Tæplega 30° hiti og mikill raki í þokkabót svo að varla er líft hérna. Áðan bar ég pakka heim úr skólanum og varð auðvitað rennblautur af svita. Þetta skánar aðeins með kvöldinu en það er eiginlegast ekki hægt að sofa á nóttunni vegna hita.
Annars fór dagurinn í smástúss, Jóhanna sótti um kennitölu sem er gjörsamlega nauðsynlegt til að lifa af, hún ætti að koma eftir 10 daga. Síðan litum við við í Kaufmanns sem var vel loftkæld og ógeðslega stór. Þegar heim var komið bakaði Jóhanna muffins köku (þ.e. eina stóra köku eftir muffins uppskrift) úr Weetabixi, mjög bragðgóð.
Stundataflan mín er að skýrast og er algjör snilld, enginn skóli á föstudögum :) . Annars þarf ég að vakna fyrir allar aldir og kenna dæmatíma kl. 8:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Ég mun kenna nýnemum, svipaðan kúrs og í fyrrahaust og líst vel á kennarann.
-
3 svör
- Real data - 24 Ágú 2004
-
Gærdagurinn gekk bara nokkuð vel. Ég var á þönum um campussvæðið. Byrjaði á því að fara á fund með Dr. Weeks og hópnum hans, í hópnum voru nokkrir nýir postdoc og nokkrir nýir doktorsnemar. Verkefnið sem ég er í felur í sér mikla vinnu með raunveruleg gögn úr mönnum, ég þarf því að skrifa upp á enn eitt siðfræðiplaggið sem fjallar um rannsóknir á mönnum. Ég er nú ekki alveg viss um hvað verkefnið fjallar en það kallast a.m.k. Genetics of age-related maculopathy (GARM) og felur í sér vinnu með SNP gögn (SNP=single nucleotide polymorphism).
Því næst hitti ég Dr. Feingold, sem ég mun líklega vinna fyrir á vormisseri. Hún hjálpaði mér að velja kúrsa. Það var nú reyndar ekki svo erfitt, þar eð ég er á fyrsta misseri og þá taka allir nokkurn veginn það sama. Ég mátti sleppa einum kúrs fyrir þá sem ekki kunna neitt í stærðfræðigreiningu né línulegri algebru. Ég varð mjög ánægð þegar Eleanor (Dr. Feingold) mælt með quantitative genetics (upp á íslensku: erfðafræði magnbundinna eiginleika, sem hljómar örugglega ekkert betur), mig langaði nefnilega að taka hann og spáði ekkert í það því hann hefur nokkra kúrsa í forkröfur og þar sem ég er ný þá er ég auðvitað ekki búin að taka þessa kúrsa. Það gekk hins vegar ekki vegna þess að hann rakst á annan kúrs sem ég verð að taka. Þá hófst leitin að öðrum áhugaverðum kúrs og nú hef ég val um þrennt: kúrs úr læknaskólanum um bioinformatics, kúrs um public health population genetics eða tölfræðikúrs úr tölfræðideildinni. Ég hugsa að tölfræðikúrs eða bioinformatics sé málið.
Þá tók við pappírsvinna á skrifstofunni og ég þeystist frama og til baka milli ritara, ritari sem sér um þetta og annar sem sér um hitt. Allt gekk þó á endaum og ég er komin með dummy SSN (social security number) og komin með pappíra til að sækja um officialt SSN. Það sem ég á eftir að gera núna er að láta vita að Ísland og USA hafa tax treaty og fylla út form um það og fylla svo út form þannig að hægt sé að borga mér laun.
Því næst þarf ég að finna út hvort nóg sé að hafa dummy SSN til að fá heilbrigðistryggingu frá skólaunum (UPMC Graduate Student Health Plan), því þá þarf ég ekkert að borga en venjulega þarf fólk að borga $800 og upp úr á ári, það fer eftir því hvað heilbrigðiskerfið er gott í þínu heimalandi. Palli þarf til dæmis að borga $800 en í raun kemur það út á eitt núna því að hann er með rúmlegar $100 meira í laun en ég á mánuði og fær laun mánuði lengur en ég, é endanum skaffar hann $100 meira til heimilisins.
Reyndi líka að kaupa bækur og svoleiðis í gær. Það er dálítið merkilegt hvað public health og læknisfræði eru mikill partur af háskólanum, þessar deildir hafa sína eigin bókabúð á meðan allt annað hýrist saman í einni bóksölu. Ég keypti bara eina bók fyrir kúrs sem hafði hana sem skyldubók, ég ætla að sjá hvað kennararnir segja í hinum kúrsunum.
Núna þarf ég að fara í computer clusture training fyrir verkefnið og á morgun að taka próf um Research & Practice Fundamentals og líka um enskukunáttu. Það er bara allt á fullu.
-
2 svör
- Strip District - 22 Ágú 2004
-
Í gær vöknuðum við eldsnemma til að fara á markað sem haldinn er fyrir erlenda nema í kirkju rétt hjá Pitt. Við stóðum í röð í hálftíma en gáfumst upp og fórum á útimarkað sem kallast Strip District. Við höfðum aldrei farið þarna áður en var sagt að þetta væri alveg magnað og allt væri svo ódýrt. Þetta var nú ekki svo magnað en þarna voru góð ítölsk bakarí með góðu brauði og kaffi - það er ekki svo auðvelt að finna góð brauð í Bandaríkjunum, sérstaklega ekki í stórmörkuðum. Þarna var líka hægt að fá evrópska osta, meira að segja venjulegan gouda brauðost.
Síðan héldum við í Century III mall, þetta var risamoll sem Office of International Services í Pitt hafði mælt með. Ég mæli ekki með því, það vantaði meira að segja merkjavöruna í Kaufmanns. Við náðum þó að kaupa rúmteppi og handklæði á 50% útsölu.
Síðan var farið með David og Tessu (David er með Palla í CMU) í partý, osta og vín partý. Þar var nóg af víni en eitthvað minna um osta.
Á morgun byrjar alvaran hjá mér, ég fer á fund með hóp Dr. Weeks. Ég á að vinna fyrir Dr. Weeks á hausmisseri en hugsanlega fyrir Dr. Feingold á vormisseri. Ég ætla líka að hitta Dr. Feingold því hún mun hjálpa mér að velja kúrsa fyrir fyrsta árið mitt hér. Ég verð að viðurkenna að ég er orðin dálítið stressuð :-)
-
6 svör
- Síðan komin upp - 21 Ágú 2004
-
Júhú, loksins er síðan komin upp. Eftir mikið HTML/CSS vesen er síðan loksins komin í gagnið og lítur betur út en áður. Þó að ekkert hafi heyrst frá okkur síðustu dagana hefur verið nóg að gera. Búin að kaupa rúm, svefnsófa, hillur og allt hvaðeina. Fyrstu dagar fóru þó auðvitað í þrif því að eins og alþjóð veit eru kanar upp til hópa skítugir eins og ég veit ekki hvað, a.m.k. ef marka má bak við ofna og í hornum í íbúðinni okkar. En við tókum auðvitað til hendinni og nú er íbúðin orðin hrein og boðleg hverjum Íslendingi.
Veðrið fyrstu dagana var frekar fínt en síðustu dagar hafa verið að fara með okkur. Rakinn og hitinn hér er óbærilegur. Síðustu tvo daga hefur geysað þrumuveður svo varla er hægt að sofa. Samkvæmt spánni á þetta að lagast á sunnudaginn.
Undur og stórmerki gerðust, Jóhanna hitti Íslending sem er að byrja í Pitt í kynningunni fyrir útlenska nýnema.
Á döfinni er að þrífa meira, kaupa meira, taka bílpróf, kaupa bíl og skrifa meira á síðuna. Ef vel viðrar verða jafnvel settar myndir af síðustu dögum á síðuna.
-
Eitt svar
Skjalageymslan
Hlekkir
Heimilisfang
- 4 Bayard Rd, Apt 61
- Pittsburgh, PA 15213
Heimasími
- 412-687-2849
Skypenotendur
- pmelsted
- johannaj
Farsímar
- P: 412-478-0511
- J: 412-708-6527
