Gréta Björg klára - 30 Nóv 2009

Þó ég segi sjálf frá þá er Gréta Björg alveg einstaklega klár. Það er alltaf jafngaman að fylgjast með henni. Ég viðurkenni alveg að hún er ekki auðveldust í heimi en hrikalega skemmtileg. Það er orðið dálítið síðan hún kunni alla stafina á ensku og núna er hún nánast búin að læra þá á íslensku, hún kann líka tölustafina og getur púslað 12 púsla púsl. Hún stafar allt sem hún sér, öll skilti og þess háttar. Núna finnst henni fátt skemmtilegra en að láta lesa fyrir sig, henni finnst líka gaman að kubba og byggja hús, leika með lestarnar, og láta dúkkuna og baby fara að sofa. Svo finnst henni gaman að horfa á teiknimyndir á Youtube, þá helst Barbapapa, Risaeðluna Barney og Lion King.

Af okkur er annars allt við það sama. Palla gengur vel í vinnuni og mér bara nokkuð vel líka. Ég fór á ráðstefnu til Hawaii í október og Gréta Björg hætti á brjósti í leiðinni, hún saknar þess nú samt enn þá anginn litli og það nýjasta hjá henni er að biðja um á fá að smakka eins og við erum alltaf að segja henni að gera með ýmsan mat.

Núna á Þakkargjörðarhátíðinni fengum við Íslendinga í mat og var það mjög skemmtilegt. Gréta Björg varð mjög leið þegar þau fóru enda var Tinna svo góð að púsla með henni.

Um jólin förum við til Grétu frænku og Gumma í Lundi og hlökkum auðvitað mikið til.

Jóhanna Jóhanna
4 svör
Frank Lloyd Wright home studio - 28 Okt 2009

Hér erum við í Oak Park á leiðinni í gegnum Frank Lloyd Wright home studio. Það er mikið af húsum eftir hann Í Oak Park, sem er rétt vestan við miðbæ Chicago.

686259129_img_9144.jpg

Enn og aftur er myndin tekin af Carrie.

Jóhanna Jóhanna
2 svör
Fjölskyldan… - 18 Okt 2009

…í Morton Arboretum í lok september.

676001022_img_7710.jpg

Jóhanna Jóhanna
3 svör
400 m - 06 Okt 2009

Gréta Björg og Einar Björn í 400 metra hæð í Sears Tower.

IMG_4874.jpg

Palli Palli
4 svör
Til hamingju með - 17 Sep 2009

afmælið amma Birna. Knús frá okkur öllu. Hlekkur á nokkrar sætar myndir í tilefni dagsins!

Jóhanna Jóhanna
Eitt svar
Til hamingju - 14 Sep 2009

með afmælið amma Þorgerður. Knús frá öllum.

Jóhanna Jóhanna
Eitt svar
Óskalisti! - 13 Sep 2009

Er að undirbúa óskalista fyrir afmælið hennar Grétu Bjargar. Hún er nú þegar búin að fá þríhjól.

1. Pening fyrir hettupeysum (var reyndar að panta peysurnar, því að það var ókeypis sending um helgina svo að ég bara dreif í að kaupa þær). Þær eru frá Planet Pudge á Etsy, það er ekki hægt að sjá þær sem ég keypti því þær eru uppseldar en ég keypti lillafjólublá og brúna.
2. Pening fyrir snjógalla og kuldaskóm. Vil helst kaupa snjógallan sem fyrst því hann er á útsölu hér.
3. Dúnsæng sem passar fyrir nýja stóru krakka rúmið (hún á sængurver frá Lín, íslensk hönnun, ég mæli þau við tækifæri).

4. Pening fyrir regnskyggni sem passar á BOB kerruna.
5. Þessa klassísku þunnu íslensku ullarnærboli, 2 stk.
6. Síðast en ekki síst bækur.
Læt fylgja eina sæta mynd af skvísunni (Carrie tók myndina í gær).

648223759_VgP34-L.jpg

Það eru líka komnar nýjar myndir á barnasíðuna.

Jóhanna Jóhanna
2 svör
Af neitunum og málskilningi - 08 Sep 2009

Það er alveg sérstaklega skemmtilegt að hlusta á Grétu Björgu þessa dagana. Hún talar út í eitt og syngur, kann orðið stafrófslagið (á ensku þó) og klassísku barnvísunar um afa og ömmu og hvítu fiðrildin. Skemmtilegast finnst mér þó skilningurinn sem hún leggur í neitanirnar. Hún leggur sko bókstaflegan skilning í orðið ekki: Til dæmis ef hún vill fara út á róló og ég segi við hana eigum við ekki að koma út á róló, þá segir hún nei, eða eigum við ekki að drífa okkur að bursta þá segir hún og hleypur svo eins og fætur toga frá tannburstanum.

Jóhanna Jóhanna
3 svör
Gaman - 27 Ágú 2009
IMG_8367.jpg
Jóhanna Jóhanna
4 svör
Litla fjölskyldan - 02 Ágú 2009

Við hittum Carrie og Allan, og krakkana þeirra í gær, á Navy Pier. Carrie er áhugaljósmyndari og tók þessa mynd af okkur:

fam_beach.jpg

Fyrir þá sem vilja sá fleiri myndir, kíkið á dagbókina á Grétu Bjargar síðu. Það eru líka myndir af krökkunum þeirra svo ég vil ekki setja hlekkina hér.

Jóhanna Jóhanna
2 svör

Flokkar

Skjalageymslan

Heimilisfang

  • 1321 E. 57th St, Apt #2
  • Chicago, IL 60637

Heimasími

  • 773-752-3272

Skypenotendur

  • pmelsted
  • johannaj

Farsímar

  • P: 412-478-0511
  • J: 412-708-6527